Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 1

Mál 1502166 Fyrst á dagskrá 2. mars 2015, síðast 5. mars 2015. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 418 liður 2

    Lagður fram viðauki 1, frá fjármálastjóra, við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna yfirtöku á rekstri gömlu Hulduhlíðar og villu í málaflokki fatlaðs fólks. Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um 24.096.591. Bæjarráð samþykkir viðauka 1 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

  2. Bæjarstjórn, fundur 174 liður 10

    Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.

    Viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2015 lagður fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Lesa alla bókunina (193 orð til viðbótar)

    Lagt til að rekstrarkostnaður Eigansjóðs í deild 31-318 verði hækkaður um kr. 5.000.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 þannig að hann verði kr. 8.743.154 í heild á árinu vegna yfirtöku Eignasjóðs á húsnæði að Bleiksárhlíð 56 á Eskifirði. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé Eignasjóðs og munu skammtímaskuldir Eignasjóðs við aðalsjóð breytast sem því nemur.

    Við yfirferð á fjárhagsáætlun ársins 2015 kom í ljós að vanáætlað er framlag Fjarðabyggðar til byggðasamlags um málefni fatlaðs fólks um kr. 19.096.591. Um er að ræða reiknivillu en ekki breyting á umfangi eða rekstri málaflokksins.

    Lagt er til að framlag til byggðasamlags um málefni fatlaðs fólks á Austurlandi í málaflokki 02 Félagsþjónusta, deild 510 Sameiginlegir liðir fatlaðs fólks, verði verði hækkað um kr. 19.096.591 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 þannig að það verði kr. 48.000.000 í heildina á árinu. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé aðalsjóðs.

    Handbært fé aðalsjóðs um lækka um kr. 24.096.591 til samræmis við ofangreint og verða kr. 420.387.000 í árslok 2015.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir viðauka nr. 1. við fjárhagsáætlun ársins 2015 með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 174 liður 1.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 418“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is