Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 146

24. febrúar 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Eiður Ragnarsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Árni Þórhallur Helgason, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 418 liður 18

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 146 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 174 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 24.febrúar 2015 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015

    Mál 1501066 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 372 dags. 13. febrúar 2015. Lögð fram til kynningar ásamt tillögu að landskipulagsstefnu.

  2. 2. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu að matsáætlun vegna 10.000 tonna viðbótarframleiðslu Laxa fiskeldis á laxi í Reyðarfirði. Skipulagsstofnun fellst á tillögu framkvæmdaraðila að matsáætlun með þeim viðbótum sem Laxar Fiskeldi setti fram og með athugasemdum Skipulagsstofnunar. Kærufrestur er til 17.mars 2015. Vísað til hafnarstjórnar frá bæjarráði 16. febrúar 2015. Bréfið kynnt.

  3. 3. Mjóafjarðarhöfn - hafnarkrani

    Mál 1502108 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni varðandi bryggjukrana á Mjóafirði. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram og finna krana sem leysir kranamál í Mjóafirði.

  4. 4. Norðfjörður - Þekja á lenginu togarabryggju

    Mál 1409204 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá opnun tilboða í þekju og lagnir á Norðfirði dags. 17. febrúar 2015. Tvö tilboð bárust í verkið og átti Nestak lægst boðið upp á 38,6 millj.kr. eða 83,1% af kostnaðaráætlun sem var 46,4 millj.kr. Bjóðendum er þökkuð þátttakan í útboðinu. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

  5. 5. 740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting á þéttbýlisuppdrætti fyrir Norðfjörð vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn

    Mál 1411134 Allur ferill málsins

    Kynnt vinna sem er í gangi vegna undirbúnings að breytingu á aðal- og deiliskipulagi vegna fyllingar við Norðfjarðarhöfn og útlit hennar.