Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 147

10. mars 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 420 liður 25

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 147 frá 10. mars 2015, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 175 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 147 frá 10.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá greinargerð um markaðsmál hafnarinnar frá Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra. Ásta Kristín sat þennan lið fundarins. Henni var þökkuð koman.

  2. 2. Björgunarvesti - styrkbeiðni

    Mál 1405045 Allur ferill málsins

    Bréf frá Slysavarnardeildinni Ársól dags. 30. janúar 2015 þar sem þakkað er fyrir stuðninginn við kaup á björgunar og að útbúa kassa undir þau.

    Hafnarstjórn þakkar bréfið.

  3. 3. Umsókn um undanþágur frá lóðsskyldu

    Mál 1502168 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor Shipping ehf. dags. 27. febrúar 2015 þar sem óskað er eftir undanþágu fyrir Oleksandr Marchenko skipstjóra mv. Jan að og frá Mjóeyrarhöfn.

    Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Oleksandr Marchenko skipstjóra mv. Jan.

  4. 4. Sjóvarnir við Eyrargötu 9-11 í Neskaupstað

    Mál 1503033 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarráðs þann 9. mars var lagt fram til kynningar bréf frá Réttingarverkstæði Sveins ehf. um sjóvarnir við Eyrargötu 9 til 11 í Neskaupstað.

    Máli vísað til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn fór yfir málið og þakkar fyrir erindið. Málinu vísað til skoðunar hjá framkvæmdasviði.

  5. 5. Fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018 - Umsóknir vegna verkefna í hafnargerð og sjóvörnum.

    Mál 1502149 Allur ferill málsins

    Erindi frá Vegagerðinni dags. 25. febrúar 2015 þar sem óskað er eftir umsóknum um þau verkefni sem til greina kemur að ráðast í. Fyrir fundinum láu drög að umsókn til Vegagerðarinnar. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að senda umsóknina í samræmi við umræðu á fundinum.