Bæjarstjórn, fundur 175
19. mars 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Eiður Ragnarsson, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varamaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. 755 - Deiliskipulag Óseyrar, Stöðvarfirði
Mál 1211164 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, deiliskipulag Óseyrar í Stöðvarfirði, skipulagsuppdráttur með greinargerð, dags. 15. október 2013 br. 15. apríl 2015.
Bæjarstjórn telur að deiliskipulagið samræmist kafla 5.4, landbúnaður, í aðalskipulagi.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulag Óseyrar á Stöðvarfirði með 9 atkvæðum.
-
2. Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 - endurskoðun
Mál 1503036 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði. "Þegar að loknum sveitarstjórnarkosningum metur sveitarstjórn hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun aðalskipulagsins. Um málsmeðferð á endurskoðaðri áætlun fer sem um gerð nýs aðalskipulags sé að ræða. Ef niðurstaða sveitarstjórnar er að aðalskipulagið þarfnist ekki endurskoðunar heldur það gildi sínu. Skal ákvörðun sveitarstjórnar að jafnaði liggja fyrir innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum og skal niðurstaðan tilkynnt Skipulagsstofnun jafnskjótt og hún liggur fyrir.
Úr 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 - Endurskoðun aðalskipulags.
Á fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndarar 9.mars 2015 samþykkti nefndin að ekki væri þörf á endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007 til 2027.
Til máls tók Einar Már Sigurðarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að ekki sé þörf á heildar endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar á þessu kjörtímabili.
-
3. Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar
Mál 1411133 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skýrslu verkefnahóps um þróunarverkefni á Stöðvarfirði úr hlaði. Umfjöllun um þróunarverkefni í atvinnumálum á Stöðvarfirði og skýrslu verkefnahóps. Framlögð tillaga bæjarstjóra og verkefnastjóra atvinnumála um framhald verkefnisins og fjármagn til þess. Bæjarráð hefur rætt málið og samþykkt að veita til verkefnisins 5,5 milljónum kr. aukalega. Stöðvarfjörður þjóni sem anddyri sveitarfélagsins í suðri og verkefni taki meðal annars mið af því. Stofnað verði til 3ja mánaða verkefnis upplýsingamála í 50 % starfshlutfalli og bætt verði upplýsingaskilti fyrir sveitarfélagið allt. Sköpunarmiðstöðin fær sérstakan styrk til atvinnusköpunar ásamt fleiri verkefnum. Í áætlun hafnarsjóðs er gert ráð fyrir 15 millj. kr. til aðstöðusköpunar fyrir sæfarendur.
Heildarframlag til verkefnisins frá sveitarfélagi og ríki nemur því alls um 26 millj. kr. Til máls tóku Elvar Jónsson og Valdimar O. Hermannsson.
Bæjarstjórn samþykkir skýrslu verkefnahóps og tillögur með 9 atkvæðum.
-
4. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 2
Mál 1503123 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2015. Um er að ræða viðauka vegna þriggja mála; 1. rekstrarkostnaður almenningssamgangna 3,3 m. - sjá fundargerð bæjarráð nr. 418, mál 1403143, 2. þróunarverkefni í atvinnumálum á Stöðvarfirði 5,5 m. - sjá fundargerð bæjarráðs nr. 420, mál 1411133 og 3. refa- og minkaveiðar 2015 1,5 m. - sjá fundargerð bæjarráðs nr. 420, mál 1501209. Alls er um að ræða lækkun á handbæru fé aðalsjóðs um kr. 10.300.000 og verður það því kr. 410.087.000 í árslok 2015.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 2 með 9 atkvæðum.
-
5. Bæjarráð - 419
Fundargerðir bæjarráðs nr. 419 og 420 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O. Hermannsson, Elvar Jónsson og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 419 frá 9.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 5.1 Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL1503049
- 5.2 Ferðasýning í Fjarðabyggðarhöllinn1503051
- 5.3 Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar1411133
- 5.4 740 Naustahvammur 54 - Forkaupsréttur1503037
- 5.5 Færeyskt trúboðaskip í Fjarðabyggð 6. - 10.maí1503034
- 5.6 Sjóvarnir við Eyrargötu 9-11 í Neskaupstað1503033
- 5.7 Styrkbeiðni - Legó hönnunarkeppni í St. Louis Missouri1503038
- 5.8 Íþróttavöllurinn í Neskaupstað og aðstaða1503055
- 5.9 Ársfundur Menningarráðs Austurlands 20151503053
- 5.10 Umferðaröryggi1409120
- 5.11 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20151501235
- 5.12 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20151502053
- 5.13 Fundargerðir stjórnar SSA 20151501271
- 5.14 338. mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um seinkun klukkunnar1503054
- 5.15 Menningar- og safnanefnd - 111502018F
-
6. Bæjarráð - 420
Fundargerðir bæjarráðs nr. 419 og 420 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Valdimar O. Hermannsson, Elvar Jónsson, Einar Már Sigurðarson og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 420 frá 16.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 6.1 Endurgreiðsla á VSK fyrir Hitaveitu Fjarðabyggðar1101028
- 6.2 Meistarabréf og mat á persónustigum1412029
- 6.3 Ferðaþjónustuklasi1212016
- 6.4 Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar1411133
- 6.5 Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál1210103
- 6.6 Netnotkun nemanda í grunnskólum1503067
- 6.7 Styrkbeiðni - Legó hönnunarkeppni í St. Louis Missouri1503038
- 6.8 Beiðni frá Sóma, starfsmannafélagi Alcoa, um afslætti í sund og rækt1502138
- 6.9 Samkomulag um eignatilfærslu leikskólans í Neskaupstað1503082
- 6.10 Kaupvangur - beiðni um styrk 2015 vegna endurgerðar hússins1503080
- 6.11 Umsókn um styrk til greiðslu á fasteignaskatti1503043
- 6.12 735 Strandgata 92 - Forkaupsréttur1502167
- 6.13 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar 20151503046
- 6.14 Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 20151501209
- 6.15 Fráveita á Norðfirði - Stofnlögn og útrás1405101
- 6.16 Bygging leikskóla á Neseyri1402081
- 6.17 Almenningssamgöngur 20151501175
- 6.18 Starfsmannamál1401224
- 6.19 Landsþing sambandsins 17. apríl1501264
- 6.20 Leiðbeiningar um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar1502005
- 6.21 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
- 6.22 Fundargerðir félagsmálanefndar 20151501132
- 6.23 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1131503005F
- 6.24 Fræðslunefnd - 131503002F
- 6.25 Hafnarstjórn - 1471503003F
- 6.26 Íþrótta- og tómstundanefnd - 101503007F
-
7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 113
Til máls tóku Eiður Ragnarsson, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 113 frá 9.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
-
8. Hafnarstjórn - 147
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 147 frá 10.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 8.1 Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa1005131
- 8.2 Björgunarvesti - styrkbeiðni1405045
- 8.3 Umsókn um undanþágur frá lóðsskyldu1502168
- 8.4 Sjóvarnir við Eyrargötu 9-11 í Neskaupstað1503033
- 8.5 Fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018 - Umsóknir vegna verkefna í hafnargerð og sjóvörnum.1502149
-
9. Fræðslunefnd - 13
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 13 frá 10.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 9.1 Auka aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 6.mars 20151502120
- 9.2 Styrktarsjóður EBÍ 20151502116
- 9.3 Beiðni um styrk - nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda - 20151502082
- 9.4 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
-
10. Menningar- og safnanefnd - 11
Til máls tók Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 11 frá 3.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 10.1 Menningarstyrkir menningar- og safnanefndar 2015
-
11. Íþrótta- og tómstundanefnd - 10
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 10 frá 12.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 11.1 Úthlutun íþróttastyrkja 2015
- 11.2 Beiðni frá Sóma, starfsmannafélagi Alcoa, um afslætti í sund og rækt
- 11.3 Íþróttavöllurinn í Neskaupstað og aðstaða
-
12. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Mál 1501132 Allur ferill málsins
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 67 frá 9.mars 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.