Bæjarstjórn, fundur 176
9. apríl 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Eiður Ragnarsson, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 421
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 23. mars samþykkt með 9 atkvæðum.
- 1.1 Innkaupareglur 2015 - endurskoðun1503141
- 1.2 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 1.3 Samningur við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð 20151502088
- 1.4 740 Naustahvammur 54 - Forkaupsréttur1503037
- 1.5 735 Strandgata 92 - Forkaupsréttur1502167
- 1.6 Staða Tónlistarmiðstövar Austurlands1503157
- 1.7 Viðtalstímar bæjarfulltrúa 20151503121
- 1.8 Handverk og hönnun - vinnustofa 20151503070
- 1.9 Frakkar á Íslandsmiðum1503100
- 1.10 Fundargerðir stjórnar SSA 20151501271
- 1.11 Samningur um sjúkraflutninga 20151503166
- 1.12 Tilnefningar vegna stjórnarkjörs hjá Austurbrú ses.1503159
-
2. Bæjarráð - 422
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 31. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2014 TRÚNAÐARMÁL1503202
- 2.2 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 2.3 Málefni aldraðra í Neskaupstað1503187
- 2.4 Skipulag og staðsetning gáma til bráðabirgða á lóð Launafls1407020
- 2.5 Steinhleðsla utan um ytri kirkjugarð Reyðarfjarðar1111011
- 2.6 Styrktarbeiðni vegna landsliðsferðar til Ítalíu1503193
- 2.7 Umsóknum afnota af landi til að efla æðarvarp í landi Fjarðabyggðar1503191
- 2.8 Beiðni um lækkun fasteignagjalda - Tunguholt;7501503108
- 2.9 Nordic Built Cities Challenge - Norræn skipulagssamkeppni.1503188
- 2.10 Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. 20151503208
- 2.11 Aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar 14.apríl 20151503211
- 2.12 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20151501273
- 2.13 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1141503011F
- 2.14 Menningar- og safnanefnd - 121503013F
- 2.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1151503014F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 114
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. mars staðfest með 9 atkvæðum.
-
4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 115
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 27. mars staðfest með 9 atkvæðum.
-
5. Menningar- og safnanefnd - 12
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 26. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Norðurljósasetur
- 5.2 Málefni menningarmiðstöðva 2014
- 5.3 Fundargerð frá fundi menningarmiðstöðva og Austurbrúar
- 5.4 Staða Tónlistarmiðstövar Austurlands
- 5.5 Fransmenn á Íslandi - hugmyndasamkeppni
- 5.6 Frakkar á Íslandsmiðum
- 5.7 Frönsk-íslensk menningarhátíð
- 5.8 Aðalfundur Sjóminjasafns Austurlands
-
6. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
Mál 1501273 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 24. mars s.l. tekin til afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar staðfest með 9 atkvæðum.
-
7. 740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting á þéttbýlisuppdrætti fyrir Norðfjörð vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn
Mál 1411134 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi aðalskipulagstillögunni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdráttur fyrir Norðfjörð, vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dags. 23. febrúar 2015. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
-
8. 740 Breyting á deiliskipulagi Naust 1 vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn
Mál 1502131 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu, dags. 23. febrúar 2015 og felur meðal annars í sér landfyllingu með nýjum lóðum fyrir hafnsækna starfsemi. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.