Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Steinhleðsla utan um ytri kirkjugarð Reyðarfjarðar

Mál 1111011 Fyrst á dagskrá 10. nóvember 2014, síðast 9. apríl 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Reyðarfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 405 liður 7

    Framlögð beiðni Kirkjugarða Reyðarfjarðar um þátttöku Fjarðabyggðar í kostnaði vegna gerðar steinhleðsluveggs og plöntun trjáa við kirkjugarðinn á Reyðarfirði.

    Vísað til bæjarstjóra.

  2. Bæjarstjórn, fundur 167 liður 3.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 405“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2015

    Bæjarráð, fundur 422 liður 5

    Lagt fram minnisblað frá mannvirkjastjóra, dagsett 16. mars 2015, varðandi aðkomu sveitarfélagsins að framkvæmdum við kirkjugarð Reyðarfjarðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, tillögu mannvirkjastjóra um að gert verði upp við Kirkjugarð Reyðarfjarðar samkvæmt lögum nr. 36 frá 1993.

    Bæjarráð samþykkir uppgjörið sbr. minnisblaðið.

    Jafnframt er bæjarritara falið að rita sóknarnefndum bréf til að skýra framlög sveitarfélagsins til framkvæmda við kirkjugarða.

  4. Bæjarstjórn, fundur 176 liður 2.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 422“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is