Bæjarráð, fundur 405
10. nóvember 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 167 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs. nr. 405 og 406, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson, Valdimar O. Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Einar Már Sigurðarson, Elvar Jónsson, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Pálína Margeirsdóttir og Eiður Ragnarsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 405 frá 10. nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð
Mál 1305026 Allur ferill málsins
Á fundinn mættu frá Heilbrigðisstofnun Austurlands Kristín Björg Albertsdóttir forstjóri, Pétur Heimsson framkvæmdastjóri lækninga og Nína Hrönn Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar. Farið yfir málefni stofnunarinnar í Fjarðabyggð.
Bæjarráð Fjarðabyggðar telur ljóst að stærð húsakosts á Reyðarfirði er farin að há starfsemi heilsugæslunnar í Fjarðabyggð og við því verður að bregðast hið fyrsta. Með vísan til viljayfirlýsingar HSA og Fjarðabyggðar frá 28.júní 2013 þá skorar bæjarráð á heilbrigðisráðherra að stækkun húsnæðisins verði flýtt sem kostur er.
-
2. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Framlagt bréf Minjaverndar vegna gatnagerðargjalda að Hafnargötu 11 og Skólavegar 70a Fáskrúðfirði ásamt minnisblaði fjármálastjóra.
Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.
-
3. Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1403072 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lagt fram sem trúnaðarmál, yfirlit yfir rekstur janúar - september 2014 og tekju- og launakostnaðaryfirlit janúar - október 2014.
-
4. Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi
Mál 1309129 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað markaðs- og upplýsingafulltrúa um sameiginlegt markaðsstarf skíðasvæðanna í Stafdal og Oddsskarði. Lagt er til áframhaldandi samstarf um markaðssetningu.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði að og komið á sameiginlegu markaðsstarfi skíðasvæðanna í Stafdal og Oddskarði veturinn 2014 til 2015. Visað til kynningar í íþrótta- og tómstundanefnd.
-
5. Málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands
Mál 1411035 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar tilkynning Austurbrúar um lokun upplýsingamiðstöðvar á Egilsstöðum.
Bæjarráð lýsir áhyggjum sínum af stöðu upplýsingamiðstöðvarinnar og leggur áherslu á mikilvægi reksturs hennar sem miðlægrar upplýsingaveitu til ferðamanna í fjórðungnum.
-
6. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar
Mál 1411001 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir vinnu vegna fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar.
Bæjarstjóri mun kynna fyrir nefndum í vikunni.
-
7. Steinhleðsla utan um ytri kirkjugarð Reyðarfjarðar
Mál 1111011 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Kirkjugarða Reyðarfjarðar um þátttöku Fjarðabyggðar í kostnaði vegna gerðar steinhleðsluveggs og plöntun trjáa við kirkjugarðinn á Reyðarfirði.
Vísað til bæjarstjóra.
-
8. Gjaldskrá og reglur vegna skipulagðra samgangna 2015
Mál 1410076 Allur ferill málsins
Vísað frá fundi bæjarstjórnar nr. 165, til frekari skoðunar í bæjarráði.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og málið verður tekið fyrir í bæjarráði að fenginni tillögu nefndarinnar.
-
9. Styrkur vegna jólabingós Félags eldri borgara
Mál 1411004 Allur ferill málsins
Beiðni Félags eldri borgara Fáskrúðsfirði um frjáls afnot af Skrúði fyrir jólabingó 2.desember nk.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið um fjárhæð sem nemur húsaleigu. Tekið af liðnum óráðstafað.
-
10. Yfirlýsing frá Íbúasamtökum Eskifjarðar um skólamál í Fjarðabyggð.
Mál 1411003 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar yfirlýsing um skólamál í Fjarðabyggð.
-
11. Krafa slökkviliðsmanna um greiðslu vangoldinna launa
Mál 1306112 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar afrit af bréfi Hæstaréttar til Guðna Á. Haraldssonar þar sem rétturinn hafnar beiðni um leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms í máli Gísla Þór Briem gegn Fjarðabyggð.
-
12. Gæðastjórnunarkerfi fyrir byggingarfulltrúa
Mál 1411028 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Félags byggingarfulltrúa um gæðastjórnunarkerfi sem byggingarfulltrúum er skylt að koma upp fyrir 1. janúar 2015.
Vísað til mannvirkjastjóra.
-
13. Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 10.okt. 2014
Mál 1409162 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð ársfundar.
-
14. Ályktun frá fundi tónlistarkennara á Austurlandi
Mál 1411042 Allur ferill málsins
Framlögð ályktun Félags tónlistarskólakennara vegna verkfalls.
Bæjarráð vonar að kjaradeilan leysist sem fyrst enda er hún farin að há starfi tónlistarskólanna.