Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 422

31. mars 2015, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 176 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 31. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2014 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1503202 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri ásamt endurskoðendum KPMG.

    Gert grein fyrir vinnu við ársreikning 2014 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir.

  2. 2. Fjarðabyggð til framtíðar

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri og í símasambandi við fundinn voru verkefnisstjórar frá KPMG.

    Vegna ófyrirséðra ástæðna hefur vinna við lokaskýrslu verkefnisins frestast. Bæjarráð mun taka skýrslurnar til umfjöllunar á fundi sínum 13. apríl n.k. að öllu óbreyttu.

  3. 3. Málefni aldraðra í Neskaupstað

    Mál 1503187 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Guðjóns Haukssonar um málefni eldri borgara í Neskaupstað og aðstæður á Hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað.

    Bæjarráð sýnir fullan skilning á efni bréfsins og leggur til við félagsmálanefnd að unnin verði greining í samstarfi við HSA á þörf fyrir hjúkrunarrými í Fjarðabyggð til framtíðar.

    Vísað til félagsmálanefndar til umfjöllunar.

  4. 4. Skipulag og staðsetning gáma til bráðabirgða á lóð Launafls

    Mál 1407020 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Launafls ehf. þar sem óskað er eftir veitingu stöðuleyfis fyrir gáma til eins árs, vegna sérstakra forsendna fyrirtækisins.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og vinna í málinu milli funda.

  5. 5. Steinhleðsla utan um ytri kirkjugarð Reyðarfjarðar

    Mál 1111011 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað frá mannvirkjastjóra, dagsett 16. mars 2015, varðandi aðkomu sveitarfélagsins að framkvæmdum við kirkjugarð Reyðarfjarðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, tillögu mannvirkjastjóra um að gert verði upp við Kirkjugarð Reyðarfjarðar samkvæmt lögum nr. 36 frá 1993.

    Bæjarráð samþykkir uppgjörið sbr. minnisblaðið.

    Jafnframt er bæjarritara falið að rita sóknarnefndum bréf til að skýra framlög sveitarfélagsins til framkvæmda við kirkjugarða.

  6. 6. Styrktarbeiðni vegna landsliðsferðar til Ítalíu

    Mál 1503193 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá landsliðsstúlkum Þróttar í Neskaupstað í blaki, um fjárstyrk til ferðar 18 ára landsliðs og A landsliðs til Ítalíu.

    Vísað til íþrótta- og tómstundafulltrúa til afgreiðslu.

  7. 7. Umsóknum afnota af landi til að efla æðarvarp í landi Fjarðabyggðar

    Mál 1503191 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Gunnars B. Ólafssonar þar sem óskað er afnota af landi Fjarðabyggðar í botni Reyðarfjarðar frá landamerkjum Sléttu og Fjarðabyggðar og út á Bjargareyri við norðanverðan Reyðarfjörð.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar.

  8. 8. Beiðni um lækkun fasteignagjalda - Tunguholt;750

    Mál 1503108 Allur ferill málsins

    Umsókn um hlutfallsskiptingu álagningar, annarsvegar sem gistihús og hinsvegar sem íbúðarhús. Minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa.

    Vísað til framkvæmdasviðs og fjármálastjóra til úrvinnslu.

  9. 9. Nordic Built Cities Challenge - Norræn skipulagssamkeppni.

    Mál 1503188 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Skipulagsstofnunar um samkeppni sem er

    hluti áætlunar sem Norræni nýsköpunarsjóðurinn vinnur að á árabilinu 2015-2018 um sjálfbærni og

    nýsköpun í skipulagi norrænna bæja og borga. Markmið samkeppninnar er að styðja nýsköpun og

    þverfaglegar lausnir í norrænni skipulagsgerð og stuðla að sjálfbæru bæjarskipulagi. Sveitarfélögum og öðrum forsvarsaðilum svæða, svo sem fasteigna- og þróunarfélögum, gefst nú kostur á

    að tilnefna svæði til þátttöku í norrænni skipulagssamkeppni, Nordic Built Cities Challenge.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til að skoða hvort tilnefna eigi svæði til skipulagsgerðar sem fallið gæti að markmiðum.

  10. 10. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. 2015

    Mál 1503208 Allur ferill málsins

    Fram lagt aðalfundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga ohf 2015 en fundurinn verður hahldinn 17. apríl 2014 kl 15:30 í Kópavogi.

    Bæjarráð felur Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  11. 11. Aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar 14.apríl 2015

    Mál 1503211 Allur ferill málsins

    Fram lagt aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar fyrir árið 2015 en fundurinn er haldinn þriðjudaginn 14. apríl 2015 kl 16:00 í Neskaupstað.

    Bæjarráð felur Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  12. 12. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015

    Mál 1501273 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 52 frá 24. mars 2015, lögð fram til kynningar.

  13. 13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 114

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 114 frá 23. mars 2015, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Menningar- og safnanefnd - 12

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 12 frá 26.mars 2015, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 115

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 115 frá 27. mars 2015, lögð fram til kynningar.