Bæjarráð, fundur 423
13. apríl 2015, kl. 09:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 177 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2014
Mál 1503202 Allur ferill málsins
Trúnaðarmál.
Þennan dagskrárlið sátu fjármálastjóri og endurskoðendur sveitarfélagsins.
Kynnt drög að endurskoðunarskýrslu.
Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu í bæjarstjórn 15. apríl nk. Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs miðvikudaginn 15. apríl fyrir bæjarstjórnarfund.
-
2. Fjarðabyggð til framtíðar
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálstjóri.
Vísað frá 422. fundi bæjarráðs en skýrslur vegna verkefnisins eru teknar til umfjöllunar.
Tillaga lögð fram um að vísa skýrslum til umræðu í bæjarstjórn og nefndum sveitarfélagsins og kynna helstu niðurstöður á heimasíðu sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarráð vinni að útfærslu á endanlegum tillögum sem lagðar verði fyrir bæjarstjórn í maí og júní nk.
-
3. Samningar um fjármögnunarleigu búnaðar 2015
Mál 1503185 Allur ferill málsins
Framlagður til staðfestingar, samningur við IBM Danmark um fjármögnunarsamning sem byggður var á örútboði á vélbúnaði fyrir kennara grunnskóla Fjarðabyggðar og leikskólans Sólvalla.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
4. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands - mánudaginn 20. apríl kl. 14
Mál 1504003 Allur ferill málsins
Framlagt ársfundarboð Starfsendurhæfingar Austurlands sem haldinn verður 20. apríl 2015 að Tjarnarbraut 39e á Egilsstöðum.
Bæjarráð felur Sigrúnu Þórarinsdóttur umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum. Jafnframt samþykkir bæjarráð að Eydís Ásbjörnsdóttir verði aðalmaður í stjórn Starfsendurhæfingar Austurlands og varamaður verði Sigrún Þórarinsdóttir.
-
5. Dúfur á Reyðarfirði
Mál 1504053 Allur ferill málsins
Framlagður undirskriftarlisti forsvarsmanna fyrirtækja á Reyðarfirði þar sem óskað er eftir að gripið verði til ráðstafana til að stemma stigu við vaxandi fjölda dúfna.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og framkvæmdasviðs. Þá verði óskað eftir umsögn frá Náttúrustofu Austurlands og Heilbrigðiseftirliti Austurlands vegna málsins.
-
6. Umhirðar nýrrar lóðar Hulduhlíðar
Mál 1504062 Allur ferill málsins
Framlagt bréf framkvæmdastjóra Hulduhlíðar vegna umhirðu lóðar við nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um lóðarumhirðu nýrrar lóðar en hana ber að greiða af fjárheimildum stofnunarinnar.
-
7. Könnun á svæðasamvinnu sveitarfélaga - athugasemdir sveitarfélaga á Austurlandi
Mál 1504054 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf frá Sambandi sveitarfélaga Austurlandi, þar sem óskað er eftir að sveitarfélög fari yfir þau samstarfsverkefni sem sveitarfélögin á Austurlandi standi sameiginlega að og skili athugasemdum fyrir 14. apríl n.k. Bæjarritara falið að yfirfara og koma athugasemdum á framfæri ef ástæða er til.
-
8. Reglur Fjarðabyggðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Mál 1210150 Allur ferill málsins
Framlagaðar endurnýjaðar reglur um verkfæra- og tækjakaup fatlaðs fólks til umræðu og afgreiðslu en félagsmálanefnd samþykkti framlagðar breytingar á fundi sínum þann 7. apríl sl.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
9. 60 ára afmæli Björgvunarsveitarinnar
Mál 1504063 Allur ferill málsins
Framlagt boðsbréf frá Björgunarsveitinni Gerpi þar sem boðað er til afmælishófs vegna 60 ára afmælis sveitarinnar.
Bæjarráð óskar björgunarsveitinni til hamingju með afmælið og samþykkir, í tilefni þess, að færa henni að gjöf 500.000 kr. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
10. Sumarstörf námsmanna - samstarf við Vinnumálastofnun 2015
Mál 1504017 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Atvinnuleysistryggingarsjóðs um átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn sumarið 2015 með sama hætti og gert hefur verið síðustu sumur. Sveitarfélög eru hvött til að senda upplýsingar um fjölda starfa sem óskað er eftir framlagi til, en framlagið getur numið tæpum 400.000 kr. á 2ja mánaða ráðningartímabili.
Bæjarráð felur sviðsstjórum að útfæra umsóknir í samræmi við fjárheimildir.
-
11. Skipulag og staðsetning gáma til bráðabirgða á lóð Launafls
Mál 1407020 Allur ferill málsins
Frá síðasta fundi. Framlagt bréf Launafls ehf. þar sem óskað er eftir veitingu stöðuleyfis fyrir gáma til eins árs, vegna sérstakra forsendna fyrirtækisins.
Óskað er eftir áætlunum fyrirtækisins um flutning á starfsemi fyrirtækisins.
Vísað til afgreiðslu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
12. Brautskráning frá VA - afnot af íþróttarhúsi
Mál 1504057 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá skólastjóra Verkmenntaskóla Austurlands þar sem farið er fram á afnot af íþróttahúsinu í Neskaupstað fyrir útskrift skólans 30. maí nk.
Bæjarráð samþykkir að veita Verkmenntaskólanum afnot af íþróttahúsinu vegna útskriftarinnar.
-
13. Styrkumsókn vegna uppsetningar Hljóðkerfaleigunnar á Jólafrið 2015
Mál 1504056 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Hljóðkerfaleigu Austurlands þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu til uppsetningar á Jólafrið 2015, tónleikum sem haldnir verða í íþróttahúsinu í Neskaupstað 12.desember nk. Fyrir liggur að móta þarf stefnu varðandi útleigu á íþróttahúsum Fjarðabyggðar til viðburða annarra en íþróttaviðburða. Þeirri vinnu verður lokið fyrir sumarleyfi bæjarstjórnar sumarið 2015. Bæjarráð frestar því að taka afstöðu til beiðnar um styrk og afnot af húsnæðinu.
-
14. Styrkumsókn vegna uppsetningar Hljóðkerfaleigunnar á Rokkveislu 2015
Mál 1504055 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Hljóðkerfaleigu Austurlands þar sem farið er fram á styrk frá sveitarfélaginu til að halda Rokkveisluna 2015 í íþróttahúsinu í Neskaupstað þann 10. október nk.
Fyrir liggur að móta þarf stefnu varðandi útleigu á íþróttahúsum Fjarðabyggðar til viðburða annarra en íþróttaviðburða. Þeirri vinnu verður lokið fyrir sumarleyfi bæjarstjórnar sumarið 2015. Bæjarráð frestar því að taka afstöðu til beiðnar um styrk og afnot af húsnæðinu.
-
15. Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs 29.apríl 2015
Mál 1503200 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar ársfundarboð Lífeyrissjóðsins Stapa sem haldinn verður 29. apríl 2015 í Hofi.
-
16. Stjórnarfundir StarfA 2015
Mál 1502001 Allur ferill málsins
Framlögð fundargerð stjórnarfundar Starfsendurhæfingar Austurlands frá 18. mars sl.
-
17. Ársfundarboð Norðurslóðanets Íslands 15. apríl 2015
Mál 1504075 Allur ferill málsins
Framlagt ársfundarboð Norðurslóðanets Íslands 15. apríl 2015.
Bæjarráð felur Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur verkefnastjóra atvinnumála að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
-
18. Hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð
Mál 1412061 Allur ferill málsins
Erindi frá Félagsmálanefnd Fjarðabyggðar vegna hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð.
Nefndin óskar eftir við bæjarstjórn að farið verði í formlegar viðræður við Velferðarráðuneytið um málefni heimahjúkrunar og hjúkrunarheimila. Félagsmálastjóra og bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. Vísað til bæjarstjórnar til umræðu.
-
19. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Mál 1501132 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 68 frá 7. apríl lögð fram til kynningar.
-
20. Hafnarstjórn - 148
Fundargerð hafnarstjórnar frá 31. mars lögð fram til kynningar.