Bæjarstjórn, fundur 177
15. apríl 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Eiður Ragnarsson, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, varamaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2014
Mál 1503202 Allur ferill málsins
Fyrri umræða um ársreikning fyrir Fjarðabyggð og stofnanir.
Þennan dagskrárlið sátu jafnframt fjármálastjóri og Sigurjón Arnarson endurskoðandi sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri fylgdi ársreikningi úr hlaði með greinargerð og skýringum.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2014 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
2. Fjarðabyggð til framtíðar
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Skýrslur vegna verkefnisins Fjarðabyggð til framtíðar, lagðar fram til umfjöllunar.
Bæjarstjóri fylgdi skýrslunum úr hlaði.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson,
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa skýrslunum til umfjöllunar nefnda sveitarfélagsins og felur bæjarráði að vinni að útfærslu á endanlegum tillögum sem lagðar verði fyrir bæjarstjórn í maí og júní nk.
-
3. Bæjarráð - 423
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 20141503202
- 3.2 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 3.3 Samningar um fjármögnunarleigu búnaðar 20151503185
- 3.4 Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands - mánudaginn 20. apríl kl. 141504003
- 3.5 Dúfur á Reyðarfirði1504053
- 3.6 Umhirðar nýrrar lóðar Hulduhlíðar1504062
- 3.7 Könnun á svæðasamvinnu sveitarfélaga - athugasemdir sveitarfélaga á Austurlandi1504054
- 3.8 Reglur Fjarðabyggðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks1210150
- 3.9 60 ára afmæli Björgvunarsveitarinnar1504063
- 3.10 Sumarstörf námsmanna - samstarf við Vinnumálastofnun 20151504017
- 3.11 Skipulag og staðsetning gáma til bráðabirgða á lóð Launafls1407020
- 3.12 Brautskráning frá VA - afnot af íþróttarhúsi1504057
- 3.13 Styrkumsókn vegna uppsetningar Hljóðkerfaleigunnar á Jólafrið 20151504056
- 3.14 Styrkumsókn vegna uppsetningar Hljóðkerfaleigunnar á Rokkveislu 20151504055
- 3.15 Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs 29.apríl 20151503200
- 3.16 Stjórnarfundir StarfA 20151502001
- 3.17 Ársfundarboð Norðurslóðanets Íslands 15. apríl 20151504075
- 3.18 Hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð1412061
- 3.19 Fundargerðir félagsmálanefndar 20151501132
- 3.20 Hafnarstjórn - 1481503016F
-
4. Bæjarráð - 424
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 15. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
-
5. Hafnarstjórn - 148
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 31. mars staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20151501066
- 5.2 Aðstöðuhús við smábátahafnir1503148
- 5.3 Beiðni um leyfi ti að fá að setja skilti um friðlýsingu vegna æðarvarps við smábátahafnir á Reyðarfirði og Eskifirði.1503176
- 5.4 Grjótvarnir við Nesgötu 4 Norðfirði1503129
- 5.5 Innkaupareglur 2015 - endurskoðun1503141
- 5.6 Lóa og lagfæring á upptökustað1503158
- 5.7 Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði1503131
- 5.8 Norðfjörður - Fyrirspurn vegna foktjóns 14. mars 20151503165
- 5.9 Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, tillaga að breytingu á deiliskipulagi Naust 1 og umhverfisskýrsla send umsagnaraðilum til umsagnar fyrir auglýsingu1503183
- 5.10 Frágangur vegna fisk- og kræklingaeldis1503173
- 5.11 Norðfjörður - umhverfisfrágangur við smábátahöfn1412034
-
6. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Mál 1501132 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar frá 7. apríl til afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum af bæjarstjórn.
-
7. Fræðslunefnd - 14
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Pálína Margeirsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar frá 14. apríl s.l. staðfest með 9 atkvæðum af bæjarstjórn.
- 7.1 Innkaupareglur 2015 - endurskoðun1503141
- 7.2 Sundkennsla í Grunnskóla Eskifjarðar1503066
- 7.3 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 7.4 Kennslutímamagn grunnskóla 2015-20161504064
-
8. Reglur Fjarðabyggðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Mál 1210150 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Endurnýjaðar reglur um verkfæra- og tækjakaup fatlaðs fólks til umræðu og staðfestingar í bæjarstjórn. Félagsmálanefnd samþykkti framlagðar breytingar á fundi þann 7. apríl sl.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir reglurnar með 9 atkvæðum.
-
9. Hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð
Mál 1412061 Allur ferill málsins
Forseti fylgdi málinu úr hlaði.
Félagsmálanefnd hefur óskað eftir við bæjarstjórn, að farið verði í formlegar viðræður við Velferðarráðuneytið um málefni heimahjúkrunar og hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir tillögur félagsmálanefndar með 9 atkvæðum.