Sundkennsla í Grunnskóla Eskifjarðar
Mál 1503066 Fyrst á dagskrá 14. apríl 2015, síðast 15. apríl 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: EskifjörðurSkólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 14 liður 2
Bæjarráð felur fræðslustjóra að að skoða með fyrirkomulag sundkennslu á Eskifirði verði með sama fyrirkomulagi og sundkennslu á Norðfirði. Jafnframt vísað til umræðu í fræðslunefnd. Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem fram kemur að magn sundkennslu pr. nemanda er eins á Eskifirði og Norðfirði, en tímasetning kennslunnar ólík. Á Norðfirði er einn tími á viku yfir skólaárið og kennt eftir hádegi, en á Eskifirði eru kenndir þrír tímar á viku að hausti og vori. Einnig kemur fram að hvort fyrirkomulag um sig skilar nemendum jafngóðri sundkennslu og kostnaður er svipaður. Í minnisblaðinu kemur fram að aðstæður geti verið breytilegar milli staða. Erfiðara hefur verið að halda góðum hita í sundlauginni á Eskifirði yfir vetrarmánuðina og oftar hefur þurft að fella niður sundkennslu vegna hitastigs í lauginni og þar sem veður er að jafnaði betra að hausti og vori þá hefur sá tími verið valinn til kennslu. Ábreiða á sundlaugina á Eskifirði sem sett var upp á síðasta ári og lagfæring á hitunarbúnaði sem unnið er að, geta breytt forsendum. Í minnisblaðinu kemur fram að eðlilegast sé að skólastjórar meti aðstæður á hverjum stað líkt og verið hefur og velji það fyrirkomulag sem hentar best hverjum skóla. Fræðslunefnd er sammála niðurstöðu minnisblaðsins.
-
Bæjarstjórn, fundur 177 liður 7.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 14“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.