Bæjarstjórn, fundur 178
30. apríl 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Eiður Ragnarsson, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varamaður
- Sævar Guðjónsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 425
Fundargerðir bæjarráðs nr. 425 og nr. 426 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 20.apríl 2015, staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL1503049
- 1.2 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 1.3 Tjaldsvæði Fjarðabyggð 20151501284
- 1.4 Valhöll Eskifirði - notkun á félagsheimilinu1504130
- 1.5 Framkvæmdir við Strandgötu 73 Eskifirði1504109
- 1.6 Hugmyndir íbúasamtaka Reyðarfjarðar um notkun Strandgötu 7 ; 7301504134
- 1.7 Fjarskiptamál - Póstfang 730 Fjarðbyggð1504133
- 1.8 Vinnuskóli 20151502158
- 1.9 Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 20181406124
- 1.10 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20151501235
- 1.11 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1161504003F
- 1.12 Íþrótta- og tómstundanefnd - 111504009F
-
2. Bæjarráð - 426
Fundargerðir bæjarráðs nr. 425 og nr. 426 teknar til afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 27.apríl 2015 staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Nýr vefur Fjarðabyggðar opnaður1402073
- 2.2 Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 20141503202
- 2.3 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 2.4 Álagður tekjuskattur við álagningu opinberra gjalda gjaldaárið 20141504161
- 2.5 691. mál. Til umsagnar frumvarp til laga um stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl (tímabundnar aflaheimildir)1504149
- 2.6 692. mál.Til umsagnar frumvarp til laga um veiðigjöld (veiðigjald 2015-2018),1504148
- 2.7 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 20151408022
- 2.8 Hrossabeit í landi Kollaleiru1504164
- 2.9 Kvikmyndatökur Pegasus og notkun bygginga í Fjarðabyggð1504147
- 2.10 Nýting forkaupsréttar á Strandgötu 1a, Eskifirði1504128
- 2.11 Samningur um endurgjald vegna nýtingar jarðhita og mannvirkja1406060
- 2.12 Beiðni um umsögn vegna breytingar á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags1504143
- 2.13 Arctic Service Hub - Málþing 2.júní1504117
- 2.14 Ársfundarboð Norðurslóðanets Íslands 15. apríl 20151504075
- 2.15 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20151502135
- 2.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1171504012F
- 2.17 Hafnarstjórn - 1491504011F
- 2.18 Menningar- og safnanefnd - 131504013F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 116
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 116 og nr. 117 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Sævar Guðjónsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. apríl 2015 staðfest með 9 atkvæðum.
-
4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 117
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 116 og nr. 117 teknar til afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 20. apríl 2015 staðfest með 9 atkvæðum.
-
5. Hafnarstjórn - 149
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. apríl 2015 staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Aðalfundur Cruise Iceland haldinn í Reykjavík 8. maí 20151504137
- 5.2 Útboð - Safnahúsið í Neskaupstað1403067
- 5.3 Skýrsla um "Skemmtiferðaskip við Ísland - úttekt á áhrifum"1504069
- 5.4 Seatrade Miami 16-19 mars 20151411079
- 5.5 Innkaupareglur 2015 - endurskoðun1503141
- 5.6 Umsókn um stöðuleyfi - starfsmannaaðstaða Eimskips1501221
- 5.7 Norðfjörður - Fyrirspurn vegna foktjóns 14. mars 20151503165
- 5.8 Landtenging Mjóeyrarhöfn1503076
- 5.9 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
-
6. Menningar- og safnanefnd - 13
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 22. apríl 2015 staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Fjarðabyggð til framtíðar
- 6.2 Innkaupareglur 2015 - endurskoðun
- 6.3 Valhöll Eskifirði - notkun á félagsheimilinu
- 6.4 Menningarstyrkir menningar- og safnanefndar 2015
- 6.5 Beiðni um ársleyfi frá störfum
-
7. Íþrótta- og tómstundanefnd - 11
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 16. apríl 2015 staðfest með 9 atkvæðum.
- 7.1 Innkaupareglur 2015 - endurskoðun
- 7.2 Breyttur opnunartími í íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar á laugardögum
- 7.3 Fjarðabyggð til framtíðar
- 7.4 Fréttir af málaflokknum
-
8. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2014
Mál 1503202 Allur ferill málsins
Síðari umræða um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi ársreikningnum úr hlaði til síðari umræðu.
Til máls tók: Valdimar O Hermannsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2014 og áritar ársreikninginn.
-
9. 691. mál. Til umsagnar frumvarp til laga um stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl (tímabundnar aflaheimildir)
Mál 1504149 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Til umsagnar frumvarp til laga um stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl. Lög þessi gilda um stjórn veiða íslenskra fiskiskipa á Norðaustur-Atlantshafsmakrílstofninum hvort sem veiðarnar eru stundaðar innan eða utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að umsögn.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum umsögnina sem er sameiginleg fyrir dagskrárliði 9 og 10.
Fjarðabyggð vísar til fyrri umsagna um frumvörp til laga um veiðigjöld.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur miklar áhyggjur af því að fyrirhuguð veiðigjöld muni hafa veruleg áhrif á fjárfestingar og framkvæmdir á vegum greinarinnar í sveitarfélaginu, ásamt tilflutningi á störfum milli landsvæða. Í frumvarpinu er sérstaklega bent á þetta sem ókost frumvarpsins þ.e. að ?veiðigjöld geti takmarkað olbogarými til fjárfestinga og framkvæmda sem getur haft nokkur neikvæð áhrif til lengri tíma litið?.
Þá tekur sveitarfélagið undir kröfu samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og ákveðin vonbrigði að ekki er gert ráð fyrir hlutdeild sveitarfélaga í þeim tekjum sem koma til ríkisins vegna þessa sérstaka gjalds. Mikilvægt er að sveitarfélagið hafi aukin framlög af innheimtu veiðigjalda m.a. til mótvægisaðgerða til að minnka áhrif lagabreytinga og hagræðingarkrafna í sjávarútvegi á búsetu í sjávarbyggðum m.a. vegna álagningar veiðigjaldsins.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hvetur núverandi stjórnvöld til aukins samráðs við sveitarfélög og fyrirtæki áður en frumvarp sem þetta er lagt fram.
Varðandi mál 691, frumvarp til laga um stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl (tímabundnar aflaheimildir) hvetur sveitarfélagið til þess að við gerð frumvarpsins séu höfð til hliðsjónar þau sjónarmið um að sem mest verðmæti verði til í greininni.
-
10. 692. mál.Til umsagnar frumvarp til laga um veiðigjöld (veiðigjald 2015-2018)
Mál 1504148 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjöld, nr. 74/2012 (veiðigjald 2015 - 2018).