Bæjarráð, fundur 425
20. apríl 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 178 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 425 og nr. 426 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 20.apríl 2015, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1503049 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Lagt fram sem trúnaðarmál, yfirlit yfir rekstur janúar - febrúar 2015 og tekju- og launakostnaðaryfirlit janúar - mars 2015.
-
2. Fjarðabyggð til framtíðar
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Bæjarstjórn samþykkti á fundi 15. apríl 2015, að vísa skýrslunum til umfjöllunar nefnda sveitarfélagsins og fól bæjarráði að vinni að útfærslu á endanlegum tillögum sem lagðar verði fyrir bæjarstjórn í maí og júní nk. Opnir kynningarfundir verða haldnir miðvikudaginn í þessari viku fyrir almenning kl. 17:30 í Neskaupstað og kl. 20:30 á Reyðarfirði.
Framhaldið verður vinnu við úrvinnslu fjárhagslegra upplýsinga í skýrslunum.
-
3. Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2015
Mál 1501284 Allur ferill málsins
Lögð fram tilboð og verklýsingar frá bjóðendum en alls bárust 4 tilboð. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra að hefja viðræður við Landamerki ehf. sem er eini aðilinn sem bauð í rekstur allra tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Bæjarráð staðfestir ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að taka tilboði frá Landmerki ehf. og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
-
4. Valhöll Eskifirði - notkun á félagsheimilinu
Mál 1504130 Allur ferill málsins
Framlagt bréf áhugahóps um rekstur félagsheimilisins Valhallar á Eskifirði sem óskar eftir að taka við rekstri þess til að fjölga viðburðum í húsinu.
Bæjarráð þakkar erindið en vísar til samkomulags sem er í gildi við núverandi umsjónaraðila, Félag eldri borgara á Eskifirði, þar sem sá möguleiki er fyrir hendi að hægt sé að halda viðburði í húsinu í samstarfi við umsjónaraðilann. Þá er verið að vinna að tillögum í tengslum við verkefnið Fjarðabyggð til framtíðar sem fjallar m.a. um rekstur félagsheimila.
-
5. Framkvæmdir við Strandgötu 73 Eskifirði
Mál 1504109 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Smára Jensen Jónassonar og Klöru Lindar Guðmundsdóttur um lóðamörk eignarlóðar hans við Strandgötu Eskifirði og bílastæði á lóðinni.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
6. Hugmyndir íbúasamtaka Reyðarfjarðar um notkun Strandgötu 7 ; 730
Mál 1504134 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Íbúasamtaka Reyðarfjarðar þar sem óskað er eftir að endurskoðuð verði ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að Strandgata 7 á Reyðarfirði verði rifin og hún verði afhent hóp til að vera með markað í húsinu auk annarrar starfsemi. Þá liggur fyrir beiðni frá Pegasus um að fá húsið áfram fyrir tökur á framhaldi á þáttaröðinni Fortitude.
Bæjarráð er tilbúið fyrir, sitt leyti, að greiða götu fyrir markað í húsnæðinu svo lengi sem það samrýmist þörfum Pegasus fyrir tökustað. Ekki verði um beint fjárframlag sveitarfélagsins að ræða til endurbóta á húsnæðinu. Þá verði húsið rifið að afloknum tökum á þáttaröðinni sbr. fyrri ákvarðanir um uppbyggingu miðbæjar á Reyðarfirði.
Vísað til umsagnar hafnarstjórnar, sem eiganda hússins.
-
7. Fjarskiptamál - Póstfang 730 Fjarðbyggð
Mál 1504133 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Ásmundar Ásmundssonar vegna lélegra útsendinga Rásar 2 á Reyðarfirði og brotajárns sem komið er yfir mön sem afmarkar athafnasvæði Hringrásar á Reyðarfirði.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir ábendinguna og felur forstöðumanni stjórnsýslu að kanna útsendingar Rásar 2 og koma ábendingum á framfæri. Þá er umhverfisstjóra falið að koma ábendingum um brotajárnsuppsöfnun á framfæri við Hringrás.
-
8. Vinnuskóli 2015
Mál 1502158 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi vinnuskóla árið 2015.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrirkomulagið fyrir sitt leyti og vísaði því til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillögur framkvæmdasviðs um skipulag vinnuskólans 2015.
-
9. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018
Mál 1406124 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að breytingum á skipan varamanns Sjálfstæðisflokks í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
Út fer Óskar Þór Hallgrímsson og í stað hans kemur Dýrunn Pála Skaftadóttir.
-
10. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2015
Mál 1501235 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 30. mars 2015.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 116
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. apríl 2015.
-
12. Íþrótta- og tómstundanefnd - 11
Fram lögð til kynningar fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 16. apríl 2015.