Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Hugmyndir íbúasamtaka Reyðarfjarðar um notkun Strandgötu 7 ; 730

Mál 1504134 Fyrst á dagskrá 20. apríl 2015, síðast 21. maí 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.

Í heiti málsins: Reyðarfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 425 liður 6

    Framlagt bréf Íbúasamtaka Reyðarfjarðar þar sem óskað er eftir að endurskoðuð verði ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að Strandgata 7 á Reyðarfirði verði rifin og hún verði afhent hóp til að vera með markað í húsinu auk annarrar starfsemi. Þá liggur fyrir beiðni frá Pegasus um að fá húsið áfram fyrir tökur á framhaldi á þáttaröðinni Fortitude.

    Bæjarráð er tilbúið fyrir, sitt leyti, að greiða götu fyrir markað í húsnæðinu svo lengi sem það samrýmist þörfum Pegasus fyrir tökustað. Ekki verði um beint fjárframlag sveitarfélagsins að ræða til endurbóta á húsnæðinu. Þá verði húsið rifið að afloknum tökum á þáttaröðinni sbr. fyrri ákvarðanir um uppbyggingu miðbæjar á Reyðarfirði.

    Vísað til umsagnar hafnarstjórnar, sem eiganda hússins.

  2. Bæjarstjórn, fundur 178 liður 1.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 425“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Hafnarstjórn, fundur 150 liður 6

    Bréf Íbúasamtaka Reyðarfjarðar þar sem óskað er eftir að endurskoðuð verði ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að Strandgata 7 á Reyðarfirði verði rifin og hún verði afhent hóp til að vera með markað í húsinu auk annarrar starfsemi. Þá liggur fyrir beiðni frá Pegasus um að fá húsið áfram fyrir tökur á framhaldi á þáttaröðinni Fortitude.

    Bæjarráð er tilbúið, fyrir sitt leyti, að greiða götu fyrir markað í húsnæðinu svo lengi sem það samrýmist þörfum Pegasus fyrir tökustað. Ekki verði um beint fjárframlag sveitarfélagsins að ræða til endurbóta á húsnæðinu. Þá verði húsið rifið að afloknum tökum á þáttaröðinni sbr. fyrri ákvarðanir um uppbyggingu miðbæjar á Reyðarfirði.

    Vísað til umsagnar hafnarstjórnar, sem eiganda hússins. Hafnarstjórn samþykkir bókun bæjarráðs og felur bæjarráði afgreiðslu málsins, enda falli engin kostnaður á hafnarsjóð vegna þess.

  4. Bæjarstjórn, fundur 179 liður 4.6

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 150“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is