Valhöll Eskifirði - notkun á félagsheimilinu
Mál 1504130 Fyrst á dagskrá 20. apríl 2015, síðast 30. apríl 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Eskifjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 425 liður 4
Framlagt bréf áhugahóps um rekstur félagsheimilisins Valhallar á Eskifirði sem óskar eftir að taka við rekstri þess til að fjölga viðburðum í húsinu.
Bæjarráð þakkar erindið en vísar til samkomulags sem er í gildi við núverandi umsjónaraðila, Félag eldri borgara á Eskifirði, þar sem sá möguleiki er fyrir hendi að hægt sé að halda viðburði í húsinu í samstarfi við umsjónaraðilann. Þá er verið að vinna að tillögum í tengslum við verkefnið Fjarðabyggð til framtíðar sem fjallar m.a. um rekstur félagsheimila.
-
Bæjarstjórn, fundur 178 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 425“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.