Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 149

21. apríl 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Eiður Ragnarsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Guðrún M.Ó.Steinunnardóttir, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 426 liður 17

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 149 frá 21. apríl sl., lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 178 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. apríl 2015 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn í Reykjavík 8. maí 2015

    Mál 1504137 Allur ferill málsins

    Erindi frá Cruice Iceland þar sem tilkynnt er að aðalfundur félagsins verði haldinn í Reykjavík 8. maí 2015. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra og verkefnastjóra atvinnu og þróunarmála að fara á fundinn.

  2. 2. Útboð - Safnahúsið í Neskaupstað

    Mál 1403067 Allur ferill málsins

    Afnotasamningur vegna útiaðstöðu á palli við Safnahúsið á Norðfirði milli Safnaráðs safnahússins og Hildibrand Hótel. Afnotasamningurinn er tímabundið tilraunaverkefni sem afmarkast við sumarið 2015 og gildir frá 1. júní 2015 til 31. ágúst 2015. Afnotasamningurinn lagður fram til kynningar.

  3. 3. Skýrsla um "Skemmtiferðaskip við Ísland - úttekt á áhrifum"

    Mál 1504069 Allur ferill málsins

    Skýrslan er unnin af Rannsóknarmiðstöð ferðamálaum um "Skemmtiferðaskip við Ísland - úttekt á áhrifum". Skýrslan lögð fram til kynningar.

  4. 4. Seatrade Miami 16-19 mars 2015

    Mál 1411079 Allur ferill málsins

    Greinargerð formanns Cruise Iceland frá Seatrade Miami 16-19 mars sl. lögð fram til kynningar.

  5. 5. Innkaupareglur 2015 - endurskoðun

    Mál 1503141 Allur ferill málsins

    Endurskoðun Innkaupareglna tekið fyrir á fundi hafnarstjórnar 31. mars sl. þar sem lagðar voru til breytingar við viðmiðunarfjárhæðir og var framkvæmdastjóra falið að taka saman minnisblað um málið. Minnisblað lagt fram og kynnt. Hafnarstjórn samþykkir tillögur í framlögðu minnisblaði og vísar því til bæjarráðs.

  6. 6. Umsókn um stöðuleyfi - starfsmannaaðstaða Eimskips

    Mál 1501221 Allur ferill málsins

    Kynnt erindi frá Mannviti f.h. Eimskipa þar sem óskað er eftir heimild til að tengjast rafmagni hafnarinnar og að útbúa auka niðurfall til að taka yfirborðsvatn undir starfsmannaaðstöðunni. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við beiðnina og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

  7. 7. Norðfjörður - Fyrirspurn vegna foktjóns 14. mars 2015

    Mál 1503165 Allur ferill málsins

    Kynnt svar Sjóvá dags 15.04.2015 - vegna fyrirspurnar um bætur fyrir tjón á smábátum á Norðfirði. Málið var áður kynnt á fundi 31. mars 2015. Jafnframt hefur hafnarstjórn borist erindi frá framkvæmdastjóra SÚN fyrir hönd smábátaeigendanna þar sem hann lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðu Sjóvá.

    Hafnarstjórn tekur ekki afstöðu til málsins fyrr en það hefur fengið endanlega afgreiðslu í tryggingakerfinu.

    Hafnarstjóra falið að svara erindinu frá framkvæmdastjóra SÚN.

  8. 8. Landtenging Mjóeyrarhöfn

    Mál 1503076 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor shipping dags. 1. apríl 2015 þar sem verið er að skoða landtengingu skipa félagsins á meðan þau stoppa og aðkomu hafnarinnar að því.

    Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

  9. 9. Fjarðabyggð til framtíðar

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarstjórnar 15.apríl var skýrslum vísað til umfjöllunar fastanefnda sveitarfélagsins. Skýrslan lögð fram til kynningar.