692. mál.Til umsagnar frumvarp til laga um veiðigjöld (veiðigjald 2015-2018)
Mál 1504148 Fyrst á dagskrá 27. apríl 2015, síðast 30. apríl 2015. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 426 liður 6
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Framlagt til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjöld, nr. 74/2012 (veiðigjald 2015 - 2018).
Bæjarstjóra falið að vinna umsögn vegna frumvarpsins. Bæjarráð vísar umsögn vegna frumvarpsins til bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 178 liður 10
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjöld, nr. 74/2012 (veiðigjald 2015 - 2018).
Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að umsögn.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum umsögnina sem er sameiginleg fyrir dagskrárliði 9 og 10.
Fjarðabyggð vísar til fyrri umsagna um frumvörp til laga um veiðigjöld.
Lesa alla bókunina (179 orð til viðbótar)
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur miklar áhyggjur af því að fyrirhuguð veiðigjöld muni hafa veruleg áhrif á fjárfestingar og framkvæmdir á vegum greinarinnar í sveitarfélaginu, ásamt tilflutningi á störfum milli landsvæða. Í frumvarpinu er sérstaklega bent á þetta sem ókost frumvarpsins þ.e. að ?veiðigjöld geti takmarkað olbogarými til fjárfestinga og framkvæmda sem getur haft nokkur neikvæð áhrif til lengri tíma litið?.
Þá tekur sveitarfélagið undir kröfu samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og ákveðin vonbrigði að ekki er gert ráð fyrir hlutdeild sveitarfélaga í þeim tekjum sem koma til ríkisins vegna þessa sérstaka gjalds. Mikilvægt er að sveitarfélagið hafi aukin framlög af innheimtu veiðigjalda m.a. til mótvægisaðgerða til að minnka áhrif lagabreytinga og hagræðingarkrafna í sjávarútvegi á búsetu í sjávarbyggðum m.a. vegna álagningar veiðigjaldsins.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hvetur núverandi stjórnvöld til aukins samráðs við sveitarfélög og fyrirtæki áður en frumvarp sem þetta er lagt fram.
Varðandi mál 691, frumvarp til laga um stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl (tímabundnar aflaheimildir) hvetur sveitarfélagið til þess að við gerð frumvarpsins séu höfð til hliðsjónar þau sjónarmið um að sem mest verðmæti verði til í greininni.
-
Bæjarstjórn, fundur 178 liður 2.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 426“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.