Kennslutímamagn grunnskóla 2015-2016
Mál 1504064 Fyrst á dagskrá 14. apríl 2015, síðast 15. apríl 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 14 liður 4
Fyrir fundinum liggur tillaga fræðslustjóra um útdeilingu kennslutímamagns til grunnskólanna í Fjarðabyggð. Úthlutunin byggir á reglum um úthlutun kennslutímamagns til grunnskólanna í Fjarðabyggð sem samþykktar voru í byrjun desember 2014 með þeim fyrirvara að þær færu til skoðunar í þeirri vinnu sem KPMG og Skólastofan myndu framkvæma í byrjun árs 2015. Í skýrslum frá fyrrnefndum aðilum er ekki gerð athugasemd við reglurnar. Fræðslustjóri fór yfir kennslutímamagn hvers skóla fyrir skólaárið 2015-2016 og tímamagn til annarra starfa innan skóla. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu með fyrirvara um breytingar á stjórnun sem átt gætu sér stað í fyrirliggjandi vinnu um skýrslur Skólstofunnar og KPMG. Fræðslunefnd telur mikilvægt að metið verði með einhverjum hætti áhrif breyttra úthlutunarreglna.
-
Bæjarstjórn, fundur 177 liður 7.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 14“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.