740 Breyting á deiliskipulagi Naust 1 vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn
Mál 1502131 Fyrst á dagskrá 9. apríl 2015, síðast 27. júlí 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurHafnirSkipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarstjórn, fundur 176 liður 8
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu, dags. 23. febrúar 2015 og felur meðal annars í sér landfyllingu með nýjum lóðum fyrir hafnsækna starfsemi. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 123 liður 8
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingu á deiliskipulagi Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni, vegna afmörkunnar nýrra lóða á landfyllingu, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dags. 27. júlí 2015.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.