740 Naustahvammur 54 - Forkaupsréttur
Mál 1503037 Fyrst á dagskrá 9. mars 2015, síðast 9. apríl 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 419 liður 4
Framlagt bréf Tobis ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að fasteigninni að Naustahvammi 54 í Neskaupstað.
Vísað til skoðunar bæjarstjóra og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
Bæjarstjórn, fundur 175 liður 5.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 419“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 421 liður 4
Framlagt bréf Tobis ehf. Naustahvammsfélagið, þ.e. eigendur hússins Naustahvammur 54, 740 Neskaupstað, hafa ákveðið að færa Björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupstað húsið að gjöf. Óskað er eftir yfirlýsingu frá sveitarfélaginu hvort það nýti eða falli frá kauprétti hússins.
Lagt er til að sveitarfélagið falli frá kauprétti, en sveitarfélagið handsali samkomulag við björgunarsveitina Gerpi um að húsið verði framselt til sveitarfélagsins innan árs (frá afsali hússins til Gerpis) en þá er gert ráð fyrir því að húsið hafi verið nýtt m.a. til æfinga.
-
Bæjarstjórn, fundur 176 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 421“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.