Meistarabréf og mat á persónustigum
Mál 1412029 Fyrst á dagskrá 13. mars 2015, síðast 5. nóvember 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 420 liður 2
Framlögð stefna Alþýðusambands Íslands á hendur Fjarðabyggð vegna mats á meistararéttindum tveggja starfsmanna Fjarðabyggðar.
Um er að ræða túlkunaratriði á efni kjarasamninga sem fjallar um mat á námi til launa.
Bæjarráð telur mikilvægt að úr málinu verði skorið og felur bæjarstjóra að taka til varna í málinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 175 liður 6.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 420“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 450 liður 11
Framlagður dómur félagsdóms í máli Alþýðusambands Íslands f.h. Starfsgreinasambands Íslands, vegna Afls starfsgreinafélags, f.h. Berglindar Eiríksdóttur og Sigrúnar Sæmundsdóttur gegn sveitarfélaginu Fjarðabyggð, vegna viðurkenningar á greiðslu persónuálags.
Dómurinn viðurkennir rétt þeirra til greiðslu persónuálags.
Lesa alla bókunina (140 orð til viðbótar)
Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar að niðurstaða sé komin í ágreining um framkvæmd kafla 10.2.3 í kjarasamningi hvað varðar mat á iðnmenntun. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fer með umboð sveitarfélagsins til kjarasamningagerðar og úrlausnar ágreiningsmála gagnvart viðsemjendum. Á þeim vettvangi er mikilvægt að kjarasamningar séu skýrir þannig að ekki þurfi að leita til dómstóla með úrlausn mála. Leitað er ráðgjafar þess sem fer með umboðið og í þessu tilfelli náðist ekki niðurstaða á vettvangi samstarfsnefndar sem ætti á grundvelli kjarasamnings að geta leyst úr honum. Niðurstaða Félagsdóms er að meistararréttindi í iðngreinum, ótengdu starfi, veiti sömu álagsgreiðslu og stúdentspróf. Með þessari niðurstöðu er nú eytt óvissu um túlkun sem varð tilefni til þess að málinu var skotið til Félagsdóms og meistararéttindi nú jafn metin á við stúdentspróf enda er iðnám mikilvægt í starfasamsetningu sveitarfélagsins og Verkmenntaskóli Austurlands er ein af kjarnastofnunum þess.
-
Bæjarstjórn, fundur 189 liður 1.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 450“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.