Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Beiðni frá Sóma, starfsmannafélagi Alcoa, um afslætti í sund og rækt

Mál 1502138 Fyrst á dagskrá 13. mars 2015, síðast 19. mars 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 420 liður 8

    Þennan lið dagskrár sat íþrótta- og tómstundafulltrúi.

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd.

    Lesa alla bókunina (137 orð til viðbótar)

    Framlagt bréf frá formanni Sóma, sem er starfsmannafélag Alcoa Fjarðaáls. Í bréfinu óskar formaðurinn, fyrir hönd Sóma, eftir því að starfsmenn Alcoa fái afslátt af líkamsræktar- og sundkortum sem gildi út árið 2015. Íþrótta- og tómstundanefnd getur ekki veitt sérstakan afslátt til ákveðins hóps enda hefur nefndin nýlega ákveðið að afnema alla hópa- og sérafslætti en leggur til að 15% afsláttur af sund- og líkamsræktarkortum sem veittur er í janúar og september verði einnig í gildi í apríl. Þetta verði gert til að koma til móts við þá sem enn eru að átta sig á breyttu fyrirkomulagi en héðan í frá munu tilboðin verða tvisvar á ári.

    Tillögunni er vísað til bæjarráðs til staðfestingar.

    Bæjarráð samþykkir að heimilt verði að veita á þessu ári afslætti í apríl 2015 á tímabilskortum. Ekki er um að ræða afturvirka aðgerð.

  2. Bæjarstjórn, fundur 175 liður 6.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 420“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is