Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar

Mál 1411133 Fyrst á dagskrá 24. nóvember 2014, síðast 19. mars 2015. 7 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Stöðvarfjörður

Í hnotskurn

Málið fjallar um verkefnahóp sem bæjarráð skipaði til að skoða sóknarfæri Stöðvarfjarðar og vinna að þróunarverkefni í atvinnumálum þar1. Bæjarstjórn samþykkti skýrslu hópsins og tillögur um framhald verkefnisins 19. mars 2015, en heildarframlag sveitarfélags og ríkis til verkefnisins nemur um 26 milljónum kr.5

Staðan

Bæjarstjórn samþykkti skýrsluna og tillögurnar 19. mars 2015, og bæjarráð hafði áður falið bæjarstjóra að ganga frá samningum sem tengjast samþykktinni54.

Úr umræðu í bæjarstjórn

Á fundi bæjarstjórnar 19. mars 2015 fylgdi forseti bæjarstjórnar skýrslu verkefnahópsins úr hlaði5. Til máls tóku Elvar Jónsson og Valdimar O. Hermannsson5.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 407 liður 2

    Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar - erindisbréf

    Bæjarráð samþykkti erindisbréf fyrir starfshóp um sóknarfæri Stöðvarfjarðar, sem skipaður er tveimur fulltrúum ásamt Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur verkefnastjóra atvinnumála og á að hafa víðtækt samráð við hagsmunaaðila og íbúa.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan lið fundarins sat Ásta Kristín Sigurjónsdóttir verkefnastjóri í atvinnumálum.

    Framlagt erindisbréf fyrir starfshóp um sóknarfæri Stöðvarfjarðar. Starfshópinn skipa Rósa Valtingojer og Ívar Ingimarsson ásamt Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra atvinnumála. Hópurinn mun hafa samráð á víðum grunni við hagsmunaaðila og íbúa.

    Erindisbréfið er samþykkt.

  2. Bæjarstjórn, fundur 168 liður 8.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 407“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar - erindisbréf

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2015

    Bæjarráð, fundur 419 liður 3

    Verkefnahópurinn lagði fram gögn um þróunarverkefnið og bæjarráð ákvað að fjalla frekar um málið á næsta fundi og fól bæjarstjóra og verkefnastjóra atvinnumála að skoða það á milli funda.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan lið dagskrár sat verkefnastjóri atvinnumála ásamt Ivari Ingimarssyni og Rósu Valtingojer en þau hafa skipað verkefnahópinn.

    Framlögð gögn um þróunarverkefni í atvinnumálum á Stöðvarfirði sem unnið hefur verið að á grundvelli erindisbréfs sem bæjarstjórn samþykkti í desember sl.

    Bæjarráð samþykkir að taka málið til frekari umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs og sérstakrar umfjöllunar á bæjarstjórnarfundi. Bæjarráð felur bæjarstjóra og verkefnastjóra atvinnumála að skoða málið milli umræðna. Bæjarráð þakkar starfshópnum fyrir góða vinnu og vel unnar tillögur sem lagðar eru fram.

  4. Bæjarráð, fundur 420 liður 4

    Bæjarráð samþykkti 5,5 milljóna kr. aukaframlag til verkefnisins, meðal annars til þriggja mánaða upplýsingaverkefnis í 50% starfshlutfalli, bættra upplýsingaskilta og sérstaks styrks til Sköpunarmiðstöðvarinnar, og vísaði málinu til bæjarstjórnar.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan lið dagskrár sat verkefnstjóri atvinnumála.

    Umfjöllun um þróunarverkefni í atvinnumálum á Stöðvarfirði framhaldið frá síðasta fundi.

    Framlögð tillaga bæjarstjóra og verkefnastjóra atvinnumála um framhald verkefnisins og fjármagn til þess.

    Lesa alla bókunina (132 orð til viðbótar)

    Bæjarráð ræddi málið og samþykkir að veita til verkefnisins 5,5 milljónum kr. aukalega og er fjármálastjóra falið að leggja fram viðauka sem því nemur. Bæjarráð er sammála um að Stöðvarfjörður þjóni sem andyri sveitarfélagsins í suðri og verkefni taki meðal annars mið af því. Stofnað verði til 3ja mánaða verkefnis upplýsingamála í 50 % starfshlutfalli. Bætt verða upplýsingaskilti fyrir sveitarfélagið allt. Sköpunarmiðstöðin fær sérstakan styrk til atvinnusköpunar ásamt fleiri verkefnum. Í áætlun hafnarsjóðs er gert ráð fyrir 15 millj. kr. til aðstöðusköpunar fyrir sæfarendur.

    Heildarframlag til verkefnisins frá sveitarfélagi og ríki nemur alls um 26 millj. kr.

    Bæjarstjóra falið að ganga frá samningum sem tengjast samþykktinni. Jafnframt er sviðum sveitarfélagsins falið að aðstoða við verkefnið þar sem við á.

    Verkefninu og skýrslunni vísað til sérstakrar umræðu í bæjarstjórn ásamt staðfestingu á viðauka.

  5. Bæjarstjórn, fundur 175 liður 3

    Bæjarstjórn samþykkti skýrslu verkefnahópsins og tillögur um framhald verkefnisins með 9 atkvæðum.

    Endursögn gervigreindar

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi skýrslu verkefnahóps um þróunarverkefni á Stöðvarfirði úr hlaði. Umfjöllun um þróunarverkefni í atvinnumálum á Stöðvarfirði og skýrslu verkefnahóps. Framlögð tillaga bæjarstjóra og verkefnastjóra atvinnumála um framhald verkefnisins og fjármagn til þess. Bæjarráð hefur rætt málið og samþykkt að veita til verkefnisins 5,5 milljónum kr. aukalega. Stöðvarfjörður þjóni sem anddyri sveitarfélagsins í suðri og verkefni taki meðal annars mið af því. Stofnað verði til 3ja mánaða verkefnis upplýsingamála í 50 % starfshlutfalli og bætt verði upplýsingaskilti fyrir sveitarfélagið allt. Sköpunarmiðstöðin fær sérstakan styrk til atvinnusköpunar ásamt fleiri verkefnum. Í áætlun hafnarsjóðs er gert ráð fyrir 15 millj. kr. til aðstöðusköpunar fyrir sæfarendur.

    Lesa alla bókunina (32 orð til viðbótar)

    Heildarframlag til verkefnisins frá sveitarfélagi og ríki nemur því alls um 26 millj. kr. Til máls tóku Elvar Jónsson og Valdimar O. Hermannsson.

    Bæjarstjórn samþykkir skýrslu verkefnahóps og tillögur með 9 atkvæðum.

  6. Bæjarstjórn, fundur 175 liður 5.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 419“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  7. Bæjarstjórn, fundur 175 liður 6.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 420“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is