Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 407

24. nóvember 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, varamaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 168 liður 8

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 407 og 408 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 407 frá 24.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum

    Mál 1410164 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat Ásta Kristín Sigurjónsdóttir verkefnastjóri í atvinnumálum.

    Farið yfir helstu verkefni sem unnið hefur verið að.

  2. 2. Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar - erindisbréf

    Mál 1411133 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat Ásta Kristín Sigurjónsdóttir verkefnastjóri í atvinnumálum.

    Framlagt erindisbréf fyrir starfshóp um sóknarfæri Stöðvarfjarðar. Starfshópinn skipa Rósa Valtingojer og Ívar Ingimarsson ásamt Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra atvinnumála. Hópurinn mun hafa samráð á víðum grunni við hagsmunaaðila og íbúa.

    Erindisbréfið er samþykkt.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri.

    Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2015.

  4. 4. Flugsaga Austurlands - umsókn um styrk

    Mál 1411088 Allur ferill málsins

    Beiðni um 175.000 kr. styrk vegna ritunar flugsögu Austurlands.

    Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni.

  5. 5. Málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands

    Mál 1411035 Allur ferill málsins

    Austurbrú hefur kallað eftir tilnefningu fulltrúa í stýrihóp um málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands.

    Bæjarráð tilnefndir Helgu Guðrúnu Jónasdóttir markaðs- og upplýsingafulltrúa í stýrihóps vegna málefna Upplýsingamiðstöðvar Austurlands.

  6. 6. Áskorun til sveitarstjórnar Fjarðabyggðar vegna verkfalls tónskólakennara

    Mál 1411122 Allur ferill málsins

    Áskorun frá foreldrarfélagi Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar vegna verkfalls tónlistarkennara. Lagt fram til kynningar.

    Bæjarráð lýsir áhyggjum sínum af því að kjaradeilan er óleyst enda er hún farin að hafa víðtæk áhrif.

  7. 7. Gjaldtaka Fasteignaskrár Íslands vegna fasteignamats

    Mál 1111072 Allur ferill málsins

    Þennan lið sat fjármálastjóri.

    Kynntur dómur Hæstaréttar í máli Íslenska ríkisins og Þjóðskrá gegn Fjarðabyggð. Fjarðabyggð eru dæmdar tæpar 13 milljónir auk vaxta og verðbóta, auk 2 milljóna í málskostnað.

  8. 8. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014

    Mál 1402090 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 50 frá 18. nóvember 2014, lögð fram til kynningar.