Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 2015
Mál 1501209 Fyrst á dagskrá 23. febrúar 2015, síðast 19. mars 2015. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Landbúnaðarnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Landbúnaðarnefnd, fundur 12 liður 3
Lögð fram tillaga umhverfisfulltrúa að fyrirkomulagi refa- og minkaveiða 2015. Landbúnaðarnefnd samþykkir tillöguna að öllu leiti nema að verðulaun til ráðinna refaveiðimanna verið 14.000 kr. á dýr.
-
Bæjarráð, fundur 420 liður 14
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Lögð fram tillaga umhverfisfulltrúa að fyrirkomulagi refa- og minkaveiða 2015. Landbúnaðarnefnd samþykkti tillöguna að öðru leyti en að verðlaun til ráðinna refaveiðimanna verði 14.000 kr. á dýr í stað 10.500 kr.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og fjárheimild málaflokksins verði aukin um 1,5 milljón kr. í ljósi veiðireynslu síðustu ára. Fjármálastjóra falið að gera viðauka og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar vegna breytingar á fjárhagsáætlun 2015.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd er falið að skoða fjárheimildir til þessara mála við fjárhagsáætlunargerð 2016 í samráði við landbúnaðarnefnd.
-
Bæjarstjórn, fundur 175 liður 6.14
Fundargerðin „Bæjarráð - 420“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.