Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirLandbúnaðarnefnd

Landbúnaðarnefnd, fundur 12

23. febrúar 2015, kl. 13:00 til 00:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Anna Katrín Svavarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Baldursson, formaður
  • Halldór Árni Jóhannsson, aðalmaður
  • Ármann Elísson, aðalmaður
  • Þórhalla Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
  • Anna Katrín Svavarsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Ályktun Sambands ungra bænda um varðveislu landbúnaðarlands

    Mál 1409029 Allur ferill málsins

    Ályktun Sambands ungra bænda um varðveislu landbúnaðarlands kynnt. Landbúnaðarnefnd fagnar ályktunni og leggur til að í farið verði í frekari flokkun á landbúnaðarlandi í Fjarðabyggð, á landi til skógræktar, jarðræktar og beitarlands.

  2. 2. Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð

    Mál 1502072 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa, dagsett 10. febrúar 2015, um þörf þess að kortleggja beitarsvæði í landi Fjarðabyggðar. Landbúnaðarnefnd telur mikilvægt að kortleggja beitarsvæði í landi Fjarðabyggðar og gera þurfi reglur vegna girðinga, gjaldtöku og fyrirkomulag umsókna og úthlutunar beitarsvæða.

    Nefndin vísar málinu aftur til umhverfisfulltrúa til frekari vinnslu og leggur áherslu á að þessari vinnu verið lokið fyrir 20. apríl 2015.

  3. 3. Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 2015

    Mál 1501209 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga umhverfisfulltrúa að fyrirkomulagi refa- og minkaveiða 2015. Landbúnaðarnefnd samþykkir tillöguna að öllu leiti nema að verðulaun til ráðinna refaveiðimanna verið 14.000 kr. á dýr.

  4. 4. Skil á skýrslum um refa- og minkaveiðar á veiðiárinu 2013/2014

    Mál 1410109 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar samantekt umhverfisfulltrúa vegna refa- og minkaveiða, á veiðitímabilinu 2013-2014.

  5. 5. Ósk um beitiland við Hvalnes

    Mál 1409167 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Viðars Þórissonar dagsett 24. september 2014 um ósk um beitiland í landi Hvalnesar Stöðvarfirði. Landbúnaðarnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til reglur um úthlutun beitarsvæða fyrir Fjarðabyggð liggja fyrir.

  6. 6. Ósk um beitiland í Fáskrúðsfirði

    Mál 1502122 Allur ferill málsins

    Lögð fram ósk Gunnars Guðmundssonar um beitiland til frambúðar í Fáskrúðsfirði eða nágrenni. Landbúnaðarnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til reglur um úthlutun beitarsvæða fyrir Fjarðabyggð liggja fyrir.

  7. 7. Ósk um svæði til haustbeitar búfénaðar og túns til sláttar í Reyðarfirði

    Mál 1502099 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Guðgeirs Einarssonar dagsett 13. febrúar 2015. Þar sem óskað er eftir svæði til haustbeitar og túns til sláttar í Reyðarfirði. Landbúnaðarnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til reglur um úthlutun beitarsvæða fyrir Fjarðabyggð liggja fyrir.