Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirLandbúnaðarnefnd

Landbúnaðarnefnd, fundur 13

5. maí 2015, kl. 13:00 til 00:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Anna Katrín Svavarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Baldursson, formaður
  • Halldór Árni Jóhannsson, aðalmaður
  • Ármann Elísson, aðalmaður
  • Þórhalla Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
  • Guðmundur Elíasson, embættismaður
  • Anna Katrín Svavarsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð

    Mál 1502072 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um úthlutun og gjaldtöku á leigulandi í landi Fjarðabyggðar, drög að samningi um leiguland í landi Fjarðabyggðar og reglum um leigulönd.

    Landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi fyrirkomulag en vísar málinu aftur til framkvæmdasviðs til frekari vinnslu.

  2. 2. Umsóknum afnota af landi til að efla æðarvarp í landi Fjarðabyggðar

    Mál 1503191 Allur ferill málsins

    Frá 422. fundir bæjarráðs. Framlagt bréf Gunnars B. Ólafssonar þar sem óskað er afnota af landi Fjarðabyggðar í botni Reyðarfjarðar frá landamerkjum Sléttu og Fjarðabyggðar og út á Bjargareyri við norðanverðan Reyðarfjörð. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til umsagnar landbúnaðarnefndar.

    Bæjarráð óskar eftir við landbúnaðarnefnd að við umsögn hennar verði heildstætt hugað að ráðstöfun nytja og hlunninda lands í eigu sveitarfélagsins.

    Landbúnaðarnefnd tekur jákvætt í ráðstöfun lands í eigu Fjarðabyggðar til nytja og hlunninda og felur framkvæmasviði að gera tillögu að reglum og gjaldtöku. Nefndin felur framkvæmdasviði að svara umsókn Gunnars B. Ólafssonar.