Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirLandbúnaðarnefnd

Landbúnaðarnefnd, fundur 11

28. ágúst 2014, kl. 13:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Anna Katrín Svavarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sigurður Baldursson, formaður
  • Ármann Elísson, aðalmaður
  • Þórhalla Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
  • Árni Steinar Jóhannsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Drög að Áætlun til þriggja ára um refaveiðar.

    Mál 1404061 Allur ferill málsins

    Nefndin felur umhverifsfulltrúa að senda inn ábendingar vegna endugreiðsluhlutfalls í samræmi við umræður á fundinum.

  2. 2. Gangnaboð 2014

    Mál 1408103 Allur ferill málsins

    Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Landbúnaðarnefnd tilnefnir Sigurð Baldursson fjallskilastjóra fyrir Fjarðabyggð. Göngur skulu fara fram á tímabilinu 13-27. september 2014. Seinni göngum skal lokið fyrir 13. október 2014. Fyrir 6. nóvember 2014 mun fjallskilastjóri láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon. Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði, kr. 18.000.- pr. dagsverk. Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2014 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu göngur fara fram sem hér segir: Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar:

    Norðfjarðarsvæði: Gangnastjórar eru Axel Jónsson og Leifur Jónsson, skulu þeir sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarháls. Sigfinnur Karlsson, Önundur Erlingsson, Jón Þór Aðalsteinsson og Viðar Guðmundsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár og Oddsdal. Á Hólaströnd sér um fjallskil: Valgeir Guðmundsson. Eskifjarðarsvæði: Halldór Jóhannsson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr eins og þörf er á, þó ekki í Viðfirði og Sandvík. Verði vart við fé í Viðfirði eða Sandvík, þá verður gerður út leiðangur til að ná í það. Magnús Guðnason hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal. Sjöfn Gunnarsdóttir umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnadal. Hellisfjarðarsvæði: Lagt er til að allt Hellisfjarðarfjarðarsvæðið verði smalað samdægurs í samráði við gangastjóra. Tillaga að dagsetningu er 13. eða 20. september 2014, gangnastjórar verði þeir Önundur Erlingsson og Sigfinnur Karlsson og leggi þeir til 5 menn, Sjöfn Gunnarsdóttir leggi til 2 menn, Viðar Guðmundsson leggi til 2 menn, því til viðbótar leggi Fjarðabyggð til 5 dagsverk. Þá sjá um fyrirstöðu vestan Hrafnadals, Sjöfn Gunnarsdóttir og að austan Halldór Jóhannsson.

    Mjóifjörður: Marsibil Erlendsdóttir er gangnastjóri. Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði og samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði. Lagt er til að suðurströnd Mjóafjarðar frá Nípu og að Súlu við Reyki verði smöluð 18. Október 2014, leggi Fjarðabyggð til 5 dagsverk og Axel Jónsson eitt dagsverk.

    Sunnan varnarlínu í Reyðarfirði munu fjáreigendur sjá um eins og verið hefur. Fjáreigendur í Breiðdal sjá um smölun í Stöðvardal að Kambanesi.

    Gildir fyrir öll fjallskilasvæði: Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin. Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur eru ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon á samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur, Fjallskil á svæðinu frá Bleiká að Hjálpleysuá að sveitafélagsmörkum við Fljótsdalshérað, verði framkvæmd af fjáreigendum á Völlum í samráði við fjallskilastjóra Fjarðabyggðar.

  3. 3. Lausaganga stórgripa

    Mál 1403118 Allur ferill málsins

    Landbúnaðarnefnd samþykkir drög þessi fyrir sitt leyti.

  4. 4. Viðbragðsáætlun vegna mögulegs eldgoss

    Mál 1408105 Allur ferill málsins

    Landbúnaðarnefnd felur umhverfissfulltrúa að senda leiðbeiningar um viðbrögð við eldgosi á öll lögbýli í sveitarfélaginu.