Landbúnaðarnefnd, fundur 10
25. mars 2014, kl. 10:00 til 12:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Árni Steinar Jóhannsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Baldursson, aðalmaður
- Halldór Árni Jóhannsson, aðalmaður
- Ármann Elísson, aðalmaður
- Axel Jónsson, aðalmaður
- Árni Steinar Jóhannsson, embættismaður
- Unnur Ása Atladóttir, embættismaður
Dagskrá
-
1. Skil á skýrslum um refa- og minkaveiðar á veiðiárinu 2012/2013
Mál 1310058 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað umhverfisfulltrúa vegna refa- og minkaveiða á árinu 2012/2013. Nefndin bendir á að ekki hefur verið veitt nægu fjármagni til málaflokksins, frá sveitarfélaginu og ríkinu, samkvæmt niðurstöðum veiðiskýrslna.
-
2. Ósk um að verði reist ný fjárrétt í Eskifjarðardal
Mál 1401125 Allur ferill málsins
Bréf Þorsteins Snorra Jónssonar frá 10. janúar 2014 þar sem óskað er eftir að reist verði ný fjárrétt í Eskifjarðadal. Nefndin leggur til að samið verði við Vegagerðina um að reist verði aðhald í Eskifjarðardal í stað réttarinnar sem rifin var vegna framkvæmda við Norðfjarðargöng.
-
3. Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 2014
Mál 1403094 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga umhverfisfulltrúa að fyrirkomulagi refa- og minkaveiða 2014.
Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagða tillögu umhverfisfulltrúa og vísar henni til samþykktar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Landbúnaðarnefnd leggur til við bæjarráð að sett verði það fjármagn í málaflokkinn sem þarf til svo að hægt verði sinna veiðunum á svipaðan hátt og síðustu ár.
-
4. Lausaganga stórgripa
Mál 1403118 Allur ferill málsins
Nefndin ræddi lausagöngu búfjár í sveitarfélaginu og leggur til að banni við lausagöngu stórgripa í sveitarfélaginu verði þinglýst.
-
5. Fyrirkomulag fjallskila og gjaldtaka vegna þeirra
Mál 1403119 Allur ferill málsins
Nefndin tók til umræðu það fyrirkomulag sem verið hefur vegna fjallskila í Fjarðabyggð. Nefndin telur heppilegast að byggja gjaldtöku á fyrri hefð. Þeir aðilar í sveitarfélaginu sem eiga fjárvon í löndum sveitarfélagsins leggja til mannskap til smölunar en að öðrum kosti greiði þeir fjallskilagjald 18.000 kr.