Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 - endurskoðun
Mál 1503036 Á dagskrá 19. mars 2015. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Skipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarstjórn, fundur 175 liður 2
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði. "Þegar að loknum sveitarstjórnarkosningum metur sveitarstjórn hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun aðalskipulagsins. Um málsmeðferð á endurskoðaðri áætlun fer sem um gerð nýs aðalskipulags sé að ræða. Ef niðurstaða sveitarstjórnar er að aðalskipulagið þarfnist ekki endurskoðunar heldur það gildi sínu. Skal ákvörðun sveitarstjórnar að jafnaði liggja fyrir innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum og skal niðurstaðan tilkynnt Skipulagsstofnun jafnskjótt og hún liggur fyrir.
Lesa alla bókunina (53 orð til viðbótar)
Úr 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 - Endurskoðun aðalskipulags.
Á fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndarar 9.mars 2015 samþykkti nefndin að ekki væri þörf á endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007 til 2027.
Til máls tók Einar Már Sigurðarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að ekki sé þörf á heildar endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar á þessu kjörtímabili.