Leiðbeiningar um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar
Mál 1502005 Fyrst á dagskrá 13. mars 2015, síðast 19. mars 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 420 liður 20
Framlagðar leiðbeiningar um siðareglur kjörinna fulltrúa. Siðanefnd Samband íslenskra sveitarfélaga sem starfar skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, hefur útbúið fræðslurit um hvað sveitarstjórnir þurfa að hafa í huga við gerð og endurskoðun siðareglna. Ritið ber heitið "Leiðbeiningar um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar".
Reynt var að setja leiðbeiningarnar upp á einfaldan og skýran hátt og notast við dæmi til að vekja fólk til umhugsunar. Vonast siðanefndin til þess að leiðbeiningarnar veki upp jákvæða umræðu um siðamál og að hún nýtist kjörnum fulltrúum í sinni vinnu.
-
Bæjarstjórn, fundur 175 liður 6.20
Fundargerðin „Bæjarráð - 420“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.