Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Björgunarvesti - styrkbeiðni

Mál 1405045 Fyrst á dagskrá 13. maí 2014, síðast 19. mars 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Hafnarstjórn, fundur 130 liður 9

    Erindi frá Slysavarnardeildinni Ársól dags. 9. maí 2014 þar sem óskað er eftir að fá að bæta við kassa fyrir björgunarvesti á bryggju neðan við Launafl á Reyðarfirði, færa og laga núverandi kassa á L-inu og setja ný björgunarvesti á bryggjurnar. Einnig er óskað eftir styrk frá hafnarsjóði til verksins og leyfi fyrir bryggjusprelli þar sem kassarnir yrðu kynntir.

    Hafnarstjórn samþykkir að styrkja verkefni um 100.000 krónur. Uppsetning og staðsetning verði í samráði við starfsmenn hafnarinnar. Hafnarstjórn heimilar slysavarnardeildinni að halda umbeðna kynningu á hafnarsvæðinu.

  2. Bæjarstjórn, fundur 156 liður 3.9

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 130“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2015

    Hafnarstjórn, fundur 147 liður 2

    Bréf frá Slysavarnardeildinni Ársól dags. 30. janúar 2015 þar sem þakkað er fyrir stuðninginn við kaup á björgunar og að útbúa kassa undir þau.

    Hafnarstjórn þakkar bréfið.

  4. Bæjarstjórn, fundur 175 liður 8.2

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 147“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is