Hafnarstjórn, fundur 130
13. maí 2014, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 385 liður 28
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 130 frá 13.maí 2014, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 156 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 130 frá 13. maí 2014 samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Olíubirgðastöð í Reyðarfirði
Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins
Í framhaldi af umræðu um kaup á landi fyrir hafnsækna starfsemi. Fyrir fundinum lá minnisblað merkt trúnaðarmál. Hafnarstjórn samþykkir tillögu í minnisblaðinu. Bæjarstjóri yfirgaf fundinn.
-
2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2014
Mál 1401229 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar hafnarsambands Íslands nr. 364 dags. 28. mars 2014. Kynnt.
-
3. Fundargerðir CI á árinu 2014
Mál 1401230 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 1. april 2014 ásamt greinargerð frá sölusýningu á Miami í mars sl.
kynnt.
-
4. Mjóifjörður - Endurnýjun þekju
Mál 1402032 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 2. april 2014 frá opnun verðkönnunar í endurnýjun þekju á Mjóafirði. Fjórir aðila fengu send gögn. Tilboð barst frá einum, Launafli og var það að upphæð 17.939.760 kr. eða 173,4% af kostnaðaráætlun sem var 10.343.600 kr.
Hafnarstjórn staðfestir höfnun verðtilboðsins og samþykkir að verkið verði boðið út.
-
5. Bátadæla á Stöðvarfjarðarhöfn
Mál 1405024 Allur ferill málsins
Erindi frá Skeljungi hf. dags. 8.maí 2014 þar sem óskað er eftir að fá að setja upp olíudælu fyrir smábáta á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn samþykkir beiðnina og felur framkvæmdastjóra hafnanna að ræða við Skeljung um staðsetningu og útfærslu.
-
6. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Í framahaldi af fundi hafnarstjórnar 11. febrúar sl. hafa verið útbúin gögn vegna stoðveggs að baki löndunarbryggju. Farið var yfir málið.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að leita verða í verkið.
-
7. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211018 Allur ferill málsins
Fyrirspurn frá verktaka varðandi malbik sem fyrir er við smábátahöfnina.
Hafnarstjórn samþykkti að láta yfirleggja núverandi malbik.
-
8. Vigtar- og upplýsingahús á Stöðvarfjörð og Eskifjörð
Mál 1404013 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 23. april 2014 frá opnun verðkönnunar í smíði vigtarhúss á Stöðvarfjörð og upplýsingahúss vegna koma skemmtiferðaskipa á Eskifjörð. Þrjú verðtilboð bárust í verkið, frá Húsið þitt, Launafli og Trévangi, en Trévangur sendi einnig inn frávikstilboð. Auk þess barst boð um kaup á tilbúnu húsi frá Nestak, en þar sem ekki var skilað inn aðaltilboði er boðið ekki hluti af þessari opnun. Lægsta verðboð átti Húsið þitt upp á 10.793.756 kr. eða 96,2% af kostnaðaráætlun sem var upp á 11.225.150 kr. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
9. Björgunarvesti - styrkbeiðni
Mál 1405045 Allur ferill málsins
Erindi frá Slysavarnardeildinni Ársól dags. 9. maí 2014 þar sem óskað er eftir að fá að bæta við kassa fyrir björgunarvesti á bryggju neðan við Launafl á Reyðarfirði, færa og laga núverandi kassa á L-inu og setja ný björgunarvesti á bryggjurnar. Einnig er óskað eftir styrk frá hafnarsjóði til verksins og leyfi fyrir bryggjusprelli þar sem kassarnir yrðu kynntir.
Hafnarstjórn samþykkir að styrkja verkefni um 100.000 krónur. Uppsetning og staðsetning verði í samráði við starfsmenn hafnarinnar. Hafnarstjórn heimilar slysavarnardeildinni að halda umbeðna kynningu á hafnarsvæðinu.