Vigtar- og upplýsingahús á Stöðvarfjörð og Eskifjörð
Mál 1404013 Fyrst á dagskrá 13. maí 2014, síðast 27. maí 2014. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: EskifjörðurStöðvarfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Hafnarstjórn, fundur 130 liður 8
Fundargerð dags. 23. april 2014 frá opnun verðkönnunar í smíði vigtarhúss á Stöðvarfjörð og upplýsingahúss vegna koma skemmtiferðaskipa á Eskifjörð. Þrjú verðtilboð bárust í verkið, frá Húsið þitt, Launafli og Trévangi, en Trévangur sendi einnig inn frávikstilboð. Auk þess barst boð um kaup á tilbúnu húsi frá Nestak, en þar sem ekki var skilað inn aðaltilboði er boðið ekki hluti af þessari opnun. Lægsta verðboð átti Húsið þitt upp á 10.793.756 kr. eða 96,2% af kostnaðaráætlun sem var upp á 11.225.150 kr. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
Bæjarstjórn, fundur 156 liður 3.8
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 130“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 386 liður 4
Samningur við Launafl, sem var næstlægstbjóðandi í verkið, lagður fram til samþykktar. Minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna. Vísað frá hafnarstjórn. Bæjarráð samþykkir samninginn.