Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar 2015
Mál 1503046 Fyrst á dagskrá 13. mars 2015, síðast 13. ágúst 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: ReyðarfjörðurFjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 420 liður 13
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
Lögð fram tillaga frá mannvirkjastjóra og rafveitustjóra, dagsett 6. mars 2015, um gjaldskrárhækkanir. Hækkun nemur 3,5% á orkusölu frá 1. apríl n.k. og 5% á dreifingu orku frá 1. maí nk.
Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
Bæjarráð leggur fram til viðbótar breytingu á gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar.
Lesa alla bókunina (75 orð til viðbótar)
"Rafveita Reyðarfjarðar leggur á jöfnunargjald fyrir árið 2015 frá 1. apríl 2015 til ársloka að telja 20 aura á hverja kílóvattstund - og einnig vegna ótryggrar orku sem nemur 0,066 kr/kWst. Byggt er á samþykkt Alþingis um breytingu á lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (jöfnunargjald) sem samþykkt var á Alþingi 5.3.2015."
Bæjarráð samþykkir tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um hækkun á orkusölu og orkudreifingu ásamt tillögu um jöfnunargjald í samþykkt þessari.
-
Bæjarstjórn, fundur 175 liður 6.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 420“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 436 liður 2
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að tillaga frá mannvirkjastjóra og rafveitustjóra, dagsett 7. júlí 2015, varðandi hækkun sölugjaldskrár Rafveitu Reyðarfjarðar verði samþykkt. Hækkunin nemur 1,7 %
Bæjarráð staðfestir tillögu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar um hækkun gjaldskrár.
-
Bæjarstjórn, fundur 183 liður 8.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 436“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.