Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Beiðni um styrk - nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda - 2015

Mál 1502082 Fyrst á dagskrá 10. mars 2015, síðast 19. mars 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðslaStyrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Fræðslunefnd, fundur 13 liður 3

    Borist hefur bréf, dagsett 11. febrúar, þar sem lögð er fram ósk um styrk frá Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG), verkefni sem hvetur til nýsköpunarkennslu í grunnskólum landsins. Nú þegar taka um 50 grunnskólar þátt að jafnaði með um 3000 umsóknir á landsvísu. Starfið fer fram allt árið um kring, með uppskeru í lok skólaárs. Tilgangur NKG er að gera einstaklingum grein fyrir sköpunargáfu sinni og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir. Fræðslunefnd samþykkir styrk að upphæð 75 þúsund krónur og hvetur jafnframt grunnskólana í Fjarðabyggð til að nýta vel þá þjónustu sem NKG hefur uppá að bjóða.

  2. Bæjarstjórn, fundur 175 liður 9.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 13“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is