730 Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði
Mál 1403113 Fyrst á dagskrá 10. apríl 2014, síðast 17. nóvember 2016. 14 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: ReyðarfjörðurÍþróttir og tómstundirSkipulag
Í hnotskurn
Málið snýst um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði1. Bæjarstjórn samþykkti breytinguna 17. nóvember 2016 og ákvað að málsmeðferð yrði í samræmi við 32. grein skipulagslaga13.
Staðan
Breytingin var samþykkt í bæjarstjórn 17. nóvember 2016 og málsmeðferð skal vera í samræmi við 32. grein skipulagslaga13.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarstjórn, fundur 153 liður 15
Breyting á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunnar vélíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðrar stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulags og matlýsingu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum framlagða skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, dreyfbýlisuppdrætti, vegna fyrirhugaðrar stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga í Reyðarfirði.
-
2015
Bæjarstjórn, fundur 174 liður 9
Breyting á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunnar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum að tillaga að breytingunni, sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dagsettri 26. janúar 2015, yrði auglýst samkvæmt 31. grein skipulagslaga
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulagstillögunni úr hlaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunnar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði verði auglýst. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dags. 26. janúar 2015.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunnar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dags. 26. janúar 2015. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 141 liður 1
Nefndin ræddi almennan íbúafund sem haldinn var 30. mars 2016 og fól skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða málið frekar og kynna það á næsta fundi
Endursögn gervigreindar
Almennur íbúafundur þar sem breyting á aðalskipulagi var kynnt var haldinn 30. mars síðastliðinn.
Tekin umræða um íbúafundinn. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggngarfulltrúa að skoða málið frekar og kynna á næsta fundi nefndarinnar.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 142 liður 2
Nefndin ræddi mótvægisaðgerðir og vísaði áframhaldandi umræðu til næsta fundar
Endursögn gervigreindar
Ræddar mótvægisaðgerðir. Áframhaldandi umræðu vísað til næsta fundar.
-
Bæjarstjórn, fundur 199 liður 6.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 141“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 199 liður 7.2
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 142“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 147 liður 4
Nefndin samþykkti að tillagan yrði auglýst að nýju, að mótvægisaðgerðir í formi göngustíga og áningarstaða innan Búðarár yrðu teknar fyrir í starfshópi um göngu- og hjólreiðastíga og að áformin yrðu kynnt Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar fyrir auglýsingu
Endursögn gervigreindar
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að breytingartillagan verði auglýst að nýju. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar. Nefndin samþykkir jafnframt að gert verði ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna skipulagsins í starfshóp um göngu- og hjólreiðastíga. Mótvægisaðgerðir felist í tengingu göngustíga, göngustígagerðar og áningastaða innan Búðarár. Nefndin felur skipulags- og byggignarfulltrúa að kynna áformin fyrir Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar áður en til auglýsingar kemur.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 8
Eftir að Valdimar O Hermannson hafði tekið til máls samþykkti bæjarstjórn með 9 atkvæðum að tillagan yrði auglýst að nýju, ásamt þeim mótvægisaðgerðum og þeirri kynningu sem nefndin hafði lagt til
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi aðalskipulagi úr hlaði.
Til máls tók Valdimar O Hermannson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að breytingartillagan verði auglýst að nýju. Gert er ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna skipulagsins í starfshóp um göngu- og hjólreiðastíga. Mótvægisaðgerðir felist í tengingu göngustíga, göngustígagerðar og áningastaða innan Búðarár. Þá verða áformin kynnt fyrir Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar áður en til auglýsingar kemur.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 2.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 147“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 153 liður 7
Tvær athugasemdir voru lagðar fram til kynningar og nefndin fól formanni sínum og bæjarstjóra að funda með forsvarsmönnum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar
Endursögn gervigreindar
Tvær athugasemdir bárust og eru lagðar fram til kynningar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela formanni nefndarinnar og bæjarstjóra að funda með forsvarsmönnum Skógræktarfélags Reyðarfjarðar fyrir næsta fund nefndarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 206 liður 4.7
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 153“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 160 liður 1
Nefndin samþykkti breytinguna fyrir sitt leyti, taldi að athugasemdirnar kölluðu ekki á breytingu á tillögunni, fól umhverfisstjóra að gera samkomulag við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar um framtíðarskógræktarsvæði og lagði áherslu á að starfsemi hæfist ekki fyrr en kröfur um hljóðvist, öryggi og ásýnd væru uppfylltar
Endursögn gervigreindar
Boðað var til íbúafundar og í kjölfarið skipulagið auglýst að nýju. Auglýsingartími er liðinn, tvær athugasemdir bárust. Fundað hefur verið með Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 16. júní 2016. Nefndin telur að þær athugasemdir sem fram eru komnar séu ekki þessi eðlis að breyta þurfi tillögunni. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
Lesa alla bókunina (59 orð til viðbótar)
Nefndin felur jafnframt umhverfisstjóra, í samráði við forsvarsmenn Skógræktarfélags Reyðarfjarðar, að skilgreina og gera samkomulag um framtíðar skógræktarsvæði í Reyðarfirði. Þá telur nefndin nausynlegt að skoðað verði frekara skipulag útivistarsvæða í Reyðarfirði og mun taka það til skoðunar. Lögð er áhersla á að starfsemi hefjist ekki á svæðinu fyrr en öllum kröfum um hljóðvist, öryggi og ásýnd séu uppfyllt.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 13
Bæjarstjórn samþykkti með 8 atkvæðum breytinguna eins og hún er sett fram á skipulagsuppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dagsettri 16. júní 2016
Endursögn gervigreindar
Varaforseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á aðalskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Boðað var til íbúafundar og í kjölfarið var skipulagið auglýst að nýju. Auglýsingartími er liðinn, tvær athugasemdir bárust. Fundað hefur verið með Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, breytingarnar.
Bæjarstjórn telur að þær athugasemdir sem fram eru komnar séu ekki þessi eðlis að breyta þurfi tillögunni og samþykkir með 8 atkvæðum breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 16. júní 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 5.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 160“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.