Fræðslunefnd, fundur 12
9. febrúar 2015, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Aðalheiður Vilbergsdóttir, varamaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 417 liður 15
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 12 frá 9. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 173 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 12 frá 9.febrúar 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjarðabyggð til framtíðar - Ingvar Sigurgeirssonar
Mál 1502002 Allur ferill málsins
Ingvar Sigurgeirsson prófessor á menntavísindasviði HÍ var í síma á fund fræðslunefndar. Ingvar vinnur að stefnumótunarverkefninu Fjarðabyggð til framtíðar og er ráðgefandi um skipan skólamála í Fjarðabyggð. Góðar umræður voru á fundinum og þakkar nefndin Ingvari fyrir fundinn og vonast til að vinna hans megi skila góðum hugmyndum inn í stefnumótunarvinnu sveitarfélagsins.
-
2. 456. mál til umsagnar um Menntamálastofnun
Mál 1501295 Allur ferill málsins
Mál 456 um Menntamálastofnun er lagt fram til umsagnar. Um er að ræða frumvarp til laga um Menntamálastofnun, sem verður stjórnsýslustofnun á sviði menntamál. Stofnunin mun m.a. fara með núverandi verkefni Námsmatsstofnunar og Námsgagnastofnunar en þær munu hætta störfum í núverandi mynd. Nefndin gerir ekki athugasemdir við málið.
-
3. 426.mál til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla (kæruleiðir, einkareknir skólar o.fl.)
Mál 1501304 Allur ferill málsins
Mál 426, frumvarp til laga um grunnskóla (kæruleiðir, einkareknir skóla o.fl), lagt fram til umsagnar. Nefndin gerir ekki athugasemdir við málið.
-
4. Námskeið fyrir skólanefndir á Austurlandi
Mál 1501104 Allur ferill málsins
Námskeið fyrir skólanefndir verður haldið á Egilsstöðum laugardaginn 21. febrúar. Fræðslunefnd sendir tvo fulltrúa á námskeiðið.