Fræðslunefnd, fundur 11
13. janúar 2015, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 413 liður 17
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 11 frá 15.janúar 2015, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 171 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 15. janúar staðfest með 9 atkævðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun á samningi um Skólaskrifstofu Austurlands A-hluti
Mál 1412062 Allur ferill málsins
Bæjarráð óskar eftir umsögn fræðslunefndar um drög að endurskoðuðum samningi um Skólaskrifstofu Austurlands A-hluta. Fræðslunefnd fór yfir drögin og samþykkir þau fyrir sitt leyti.
-
2. Orðsporið 2015
Mál 1412094 Allur ferill málsins
Borist hefur bréf frá samstarfshópi um dag leikskólans. Í bréfinu kemur fram að tvö síðastliðin ár hefur viðurkenningin Orðsporið verið afhent þeim sem skarað hafa framúr í að efla orðspor leikskólastarfs. Í ár hefur verið ákveðið að viðurkenningin fari til þess sveitarfélags eða rekstraraðila sem skarað hefur framúr við að auka menntunarstig starfsmanna í leikskóla og óskað er eftir tilnefningum. Fræðslunefnd lýsir ánægju með þessa ákvörðun samstarfshópsins. Fræðslunefnd ítrekar afstöðu sína um breytingu á reglum um námsstyrki sem veittir eru starfsmönnum Fjarðabyggðar, þar sem áhersla verði lögð á menntun starfsmanna leikskóla.
-
3. Sumarlokun leikskóla sumarið 2015
Mál 1501034 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem fram er sett eftirfarandi tillaga að sumarlokun leikskóla 2015.
Stöðvarfjarðarskóli 13.07-07.08 báðir dagar meðtaldir
Kæribær 13.07-07.08
Lyngholt 25.06-23.07
Dalborg 15.07-11.08
Sólvellir 06.07-31.07
Fræðslunefnd samþykkir framlagða tillögu.
-
4. Námskeið fyrir skólanefndir á Austurlandi
Mál 1501104 Allur ferill málsins
Formaður fræðslunefndar vakti athygli á námskeiði fyrir skólanefndir á Austurlandi sem haldið verður á Egilsstöðum laugardaginn 17. janúar frá kl. 9 - 17. Fræðslunefnd ákveður að senda fulltrúa á fundinn.