Orðsporið 2015
Mál 1412094 Fyrst á dagskrá 15. desember 2014, síðast 22. janúar 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 410 liður 11
Framlagðar upplýsingar um dag leikskólans sem haldinn verður hátíðlegur 6. febrúar 2015.
Vísað til fræðslunefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 169 liður 2.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 410“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 11 liður 2
Borist hefur bréf frá samstarfshópi um dag leikskólans. Í bréfinu kemur fram að tvö síðastliðin ár hefur viðurkenningin Orðsporið verið afhent þeim sem skarað hafa framúr í að efla orðspor leikskólastarfs. Í ár hefur verið ákveðið að viðurkenningin fari til þess sveitarfélags eða rekstraraðila sem skarað hefur framúr við að auka menntunarstig starfsmanna í leikskóla og óskað er eftir tilnefningum. Fræðslunefnd lýsir ánægju með þessa ákvörðun samstarfshópsins. Fræðslunefnd ítrekar afstöðu sína um breytingu á reglum um námsstyrki sem veittir eru starfsmönnum Fjarðabyggðar, þar sem áhersla verði lögð á menntun starfsmanna leikskóla.
-
Bæjarstjórn, fundur 171 liður 4.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 11“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.