Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 416

9. febrúar 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 173 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 416 og 417 teknar til afgreiðslu saman.

    Til mál tóku Jens Garðar Helgason, Einar Már Sigurðarson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 416 frá 9.febrúar 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum

    Mál 1410164 Allur ferill málsins

    Verkefnastjóri atvinnumála og markaðs- og upplýsingafulltrúi sátu þennan lið fundarins. Farið yfir stofnun og helstu hlutverk Félags atvinnurekenda í Fjarðabyggð, sértæk verkefni á Stöðvarfirði og yfirlit yfir stöðu húsnæðismála í Fjarðabyggð.

  2. 2. NAPLN - Experience exchange project

    Mál 1307034 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Greater Stavanger um framhald á NAPLN verkefninu og umsókn um styrkveitingar til þess frá norska Innanríkisráðuneytinu. Stavanger hefur samþykkt að vera leiðandi aðili sem pólitískt forystuafl. Forsendur verkefnisins eru í grunninn þær sömu en hafa verið víkkaðar þannig að þær ná til fleiri atvinnugreina. Þátttaka í verkefninu var áður samþykkt á síðasta ári. Bæjarráð samþykkir áframhaldandi þátttöku, fyrir sitt leyti, og vísar því til endanlegrar afgreiðslu í hafnarstjórn.

  3. 3. Auglýsinga og fjölmiðlastefna sveitarfélaga

    Mál 1502051 Allur ferill málsins

    Erindi markaðsstjóra Austurfréttar lagt fram. Bæjarráð leggur áherslu á að auglýsingar sveitarfélagsins nái til sem flestra og hafi hámarks dreifingu. Auglýsingadreifing er auk þess metin faglega af markaðs- og kynningarfulltrúa hverju sinni.

  4. 4. Fjarðabyggð til framtíðar - Ingvar Sigurgeirssonar

    Mál 1502002 Allur ferill málsins

    Ingvar Sigurgeirsson var í símasambandið við fundinn. Þennan lið fundarins sátu einnig Þóroddur Helgason fræðslustjóri og bæjarfulltrúarnir Eiður Ragnarsson, Einar Már Sigurðarson og Valdimar O. Hermannsson er var í símasambandi. Rætt var um hagræðingarmöguleika í málaflokki fræðslumála.

  5. 5. Fasteignastyrkir til félagasamtaka í eigin húsnæði

    Mál 1502035 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu er varðar styrki til félagasamtaka í eigin húsnæði. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði um að að framlengja samning við Sköpunarmiðstöðina Stöðvarfirði um tvö ár og jafnframt er forstöðumanni stjórnsýslu falið að ganga frá samkomulagi við BRJÁN um árlegan rekstrarstyrk. Bæjarstjóra falið að undirritað samninga vegna þessa.

  6. 6. 237.mál til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigubætur(námsmenn)

    Mál 1502033 Allur ferill málsins

    Umsagnafrestur um frumvarp til laga um húsaleigubætur er til 25. febrúar nk. Vísað til félagsmálanefndar.

  7. 7. 426.mál til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla (kæruleiðir, einkareknir skólar o.fl.)

    Mál 1501304 Allur ferill málsins

    Umsagnarfrestur um frumvarp um breytingu á lögum um grunnskóla 91/2008 er til 16.febrúar nk. Vísað til fræðslunefndar.

  8. 8. Heimsókn Nordregio

    Mál 1502031 Allur ferill málsins

    Lagðar fram upplýsingar til kynningar um heimsókn NordRegio til Fjarðabyggðar, en um er að ræða rannsókn á byggðaþróun á Norðurslóðum Norðurlanda.

  9. 9. Starfslok Markku Andersson

    Mál 1502009 Allur ferill málsins

    Bréf frá fráfarandi bæjarstjóra Jyvaskyla þar sem þakkað er fyrir samstarf á liðnum árum. Bæjarstjóra falið að senda Markku þakkarbréf fyrir samstarf á grundvelli vinabæjarsamskipta á liðnum árum.

  10. 10. Tilnefning í ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

    Mál 1502037 Allur ferill málsins

    Framlagt til upplýsinga erindi Innanríkisráðuneytisins og Sambands sveitarfélaga um skipan ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Valdimar O. Hermannsson situr í nefndinni.

  11. 11. Viðbragðsáætlun fyrir Austurland vegna eldgosa í norðanverðum Vatnajökli

    Mál 1502026 Allur ferill málsins

    Lagður fram og samþykktur Samstarfssamningur vegna viðbragðsáætlanagerðar vegna eldgosa í norðanverðum Vatnajökli, milli Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, almannavarnanefnda Múlaþings, Fjarðabyggðar, Breiðdalshrepps, Djúpavogshrepps og Lögreglustjórans á Austurlandi. Bæjarstjóra falið að undirrita samning. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  12. 12. Þjónustusamningur milli Austurbrúar og Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1502028 Allur ferill málsins

    Minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu lagt fram. Bæjarráð samþykkir þjónustusamning milli Austurbrúar og Fjarðabyggðar vegna ársins 2014. Bæjarstjóra falið að undirrita samning.

  13. 13. Þjónustusamningur Safnastofnunar og Sjóminjasafns Austurlands 2015 - 2017

    Mál 1502007 Allur ferill málsins

    Með vísan til samþykktar bæjarráðs frá 28. nóvember sl. er endurskoðaður samningur framlagður en hann byggir á að framlag 2015 verði endurskoðað samhliða, til að tryggja rekstrargrunn safnsins, sbr. efni bréfs þess frá nóvember 2014. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

  14. 14. Drög að nýjum samningi um sóknaráætlun

    Mál 1501056 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar, drög að samningi um sóknaráætlun Austurlands 2015 - 2019.

  15. 15. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015

    Mál 1501132 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 65 frá 28. janúar 2015, lögð fram til kynningar.

  16. 16. Menningar- og safnanefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 8 frá 4.febrúar 2015, lögð fram til kynningar.