Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 141

25. nóvember 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Eiður Ragnarsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 408 liður 35

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 141 frá 25.nóvember 2014, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 168 liður 12

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 141 frá 25.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir CI á árinu 2014

    Mál 1401230 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórna Cruise Iceland dags. 22. október 2014 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Fyrirspurn um þátttöku í flutninga- og hafnahóp sjávarklasans og formlega inngöngu í Íslenska sjávarklasann

    Mál 1411110 Allur ferill málsins

    Athugun á áhuga á að gerast aðili að flutninga og hafnahóp sjávarklasans og formelgri inngöngu í Íslenska sjávarklasann. Málinu frestað.

  3. 3. Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Mál 1410115 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað Mannvits frá 14.nóvember er varðar málefni Norðfjarðarflugvallar vegna hækkunar á vatnsborði leirunnar við völlinn. Til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn. Framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir.

  4. 4. Seatrade Miami 16-19 mars 2015

    Mál 1411079 Allur ferill málsins

    Erindi frá Cruise Iceland dags. 14. nóvember 2014 þar sem verið er að spyrjast fyrir um þátttöku hafna á Seatrade Miami 2015. Fulltrúi hafnanna á sýningunni verður formaður Cruies Iceland. Kostnaður við þátttöku hverrar hafnar er 65.000 kr.

    Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt í Seatrade Miami 2015.

  5. 5. Umsögn um 24.000 tonna framleiðsla á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði.

    Mál 1407037 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Skipulagsstofnunar vegna tillögu að matsáætlun vegna 13.000 tonna aukningar á eldi á laxi og regnbogasilungi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Stofnunin fellst á tillögu Fiskeldis Austfjarða hf. með viðbótum. Vísað til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.

  6. 6. Aðalskipulagsbreyting Norðfjarðarhafnar

    Mál 1411134 Allur ferill málsins

    Farið yfir málefni aðalskipulags Norðfjarðarhafnar og mögulegar breytingar á því. Hafnarstjórn samþykkir að beina því til bæjarráðs að hefja vinnu við breytingu aðal- og deiliskipulags fyrir Norðfjarðarhöfn.

  7. 7. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015

    Mál 1409138 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um fjárhagsáætlun hafnarsjóðs fyrir lokaafgreiðslu bæjarstjórnar á fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.

    Fjallað um breytingar á gjaldskrá er lúta að stöðuleyfum gáma á geymslusvæðum og gjaldtöku vegna úrgangs frá skipum vegna lagabreytinga frá síðastliðnu vori.

    Þá leggur hafnarstjórn til við bæjarráð að bætt verði í framkvæmdaáætlun 15 m.kr. í liðinn óráðstafað.

  8. 8. Rif á Strandgötu 7, Reyðarfirði

    Mál 1303116 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um eignina að Strandgötu 7 á Reyðarfirði og staðfestingu á heimild til að hefja niðurrif á eigninni, en eignin var keypt til niðurrifs sumarið 2013.

    Hafnarstjórn staðfestir heimild til að rífa húsið.