750 Ljósaland - byggingarbréf
Mál 1411157 Fyrst á dagskrá 15. desember 2014, síðast 18. desember 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 410 liður 2
Lögð fram fyrirspurn Soffíu Theodórsdóttur, f.h. Byrs fasteignasölu, þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til sölu á íbúðar- og útihúsum að Ljósalandi í Fáskrúðsfirði. Ljósaland er í eigu sveitarfélagsins en ábúðarsamningur er í gildi fyrir landið.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að gerður verði lóðarleigusamningur um húsin, gerður verður sérstakur samningur um landið sem nú tilheyrir Ljósalandi og að gerð verði yfirlýsing um að núverandi ábúðarsamningur sé fallinn úr gildi.
Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði skipulags- og byggingarfulltrúa um að ábúðarréttur falli niður. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningum vegna eigendaskiptanna.
-
Bæjarstjórn, fundur 169 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 410“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.