Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Ytra mat á leikskólum- umsókn fyrir 2015

Mál 1412002 Fyrst á dagskrá 9. desember 2014, síðast 18. desember 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Fræðslunefnd, fundur 10 liður 5

    Til umfjöllunar er auglýsing frá Námsmatsstofnun um ytra mat á leikskólum. Fram kemur í auglýsingunni að Námsmatsstofnun mun framkvæma ytra mat á 6 leikskólum árið 2015. Vakin er athygli á því að sveitarfélög sem áhuga hafa á að fá ytra mat á leikskólum sæki um fyrir 31. desember 2014. Í matinu felst að utanaðkomandi aðili leggur mat á starfsemi viðkomandi skóla með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Verður það gert m.a. með því að skoða fyrirliggjandi gögn um starfsemi skóla, vettvangsathugunum, heimsóknum matsaðila og viðtölum við nemendur, starfsfólk skóla, foreldra og fulltrúa sveitarstjórnar. Kostnaður vegna matsins greiðist úr ríkissjóði.

    Lesa alla bókunina (76 orð til viðbótar)

    Fyrir tveimur árum var framkvæmt ytra mat á leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði og fræðslunefnd leggur til að nú verði sótt um ytra mat á leikskólanum Kærabæ á Fáskrúðsfirði og leikskólanum Dalborg á Eskifirði, en beðið með að sækja um fyrir leikskólann Sólvelli í Neskaupstað þar til hann verður kominn í nýtt húsnæði á Neseyrinni. Nefndin felur fræðslustjóra að fylgja málinu eftir með umsókn en í henni verður m.a. að koma fram afstaða foreldraráða skólanna til umsóknarinnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 169 liður 3.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 10“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is