Framlög til stjórnmálaflokka
Mál 1404124 Fyrst á dagskrá 5. maí 2014, síðast 18. desember 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 384 liður 17
Bæjarráð felur bæjarritara að yfirfara styrki til stjórnmálaflokka á kjörtímabilinu sbr. reglur þar að lútandi.
-
Bæjarstjórn, fundur 154 liður 4.17
Fundargerðin „Bæjarráð - 384“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 409 liður 4
Framlög til framboða í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Tekin umræða um framlög til framboða sbr. reglur Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir að framlög til framboða í Fjarðbyggð verði 1.000.000 kr. frá og með árinu 2014 og skiptist milli framboða eftir atkvæðamagni enda er það í samræmi við lög um að framlög til stjórnamálaflokka séu greidd árlega. Á kosningaári taki helmingur af framlagi mið af atkvæðamagni í kosningum, en helmingur taki mið af atkvæðamagni í næstu kosningum á undan. Jafnframt verði framlög til framboða á síðasta kjörtímabili leiðrétt í hlutfalli við atkvæðamagn á síðasta kjörtímabili. Takist af liðnum óráðstafað.
-
Bæjarstjórn, fundur 169 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 409“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.