Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 409

8. desember 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 169 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs, nr. 409 og nr. 410, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 409 frá 8. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1403072 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram sem trúnaðarmál, rekstrar- og framkvæmdayfirlit janúar - október 2014 og tekju- og launakostnaðaryfirlit janúar - nóvember 2014.

  2. 2. Búfénaður í Mjóafirði - Trúnaðarmál

    Mál 1412055 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Ólafíu Sigrúnar Einarsdóttur er varðar eftirleitir og fjallskil í Mjóafirði.

    Óskað er eftir umsögn þar til bærra aðila um málið og umsögn verði lögð fyrir bæjarráðið að því loknu. Lagt fram til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  3. 3. Drög að samþykktum um gæludýrahald á starfssvæði Heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis

    Mál 1412001 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samþykkt um hunda- og kattahald sem Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur unnið. Fjarðabyggð er boðið að gerast aðili að samþykktunum. Bæjarráð vísar máli til stjórnsýslu- og þjónustusviðs og mannvirkjastjóra, með ósk um að drögin og reglugerð, verði yfirfarin í samráði við heilbrigðisfulltrúa. Einnig vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  4. 4. Framlög til stjórnmálaflokka

    Mál 1404124 Allur ferill málsins

    Framlög til framboða í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Tekin umræða um framlög til framboða sbr. reglur Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir að framlög til framboða í Fjarðbyggð verði 1.000.000 kr. frá og með árinu 2014 og skiptist milli framboða eftir atkvæðamagni enda er það í samræmi við lög um að framlög til stjórnamálaflokka séu greidd árlega. Á kosningaári taki helmingur af framlagi mið af atkvæðamagni í kosningum, en helmingur taki mið af atkvæðamagni í næstu kosningum á undan. Jafnframt verði framlög til framboða á síðasta kjörtímabili leiðrétt í hlutfalli við atkvæðamagn á síðasta kjörtímabili. Takist af liðnum óráðstafað.

  5. 5. Girðing á athafnasvæð Samskipa við Hafnargötu 6, Reyðarfirði.

    Mál 1412009 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Ásmundar Ásmundssonar er varðar girðingu á athafnasvæði Samskipa á Reyðarfirði. Bæjarráð þakkar bréfið, vísar því til skipulags- og byggingarfulltrúa og til umfjöllunar og afgreiðslu í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  6. 6. Gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda

    Mál 1410073 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá byggingarleyfis og þjónustugjalda vísað til bæjarráðs frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

    Bæjarráð staðfestir gjaldskrá en hún gildir frá 1. janúar 2015.

  7. 7. Gjaldskrá ferðaþjónustu fatlaðs fólks 2015

    Mál 1410029 Allur ferill málsins

    Framlögð gjaldskrá vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks árið 2015.Félagsmálanefnd samþykkti gjaldskrá á fundi 6. október sl. og vísaði henni til staðfestingar bæjarráðs.

    Bæjarráð staðfestir gjaldskrá en hún gildir frá 1. janúar 2015.

  8. 8. Hvatning til sveitarfélaga að gera átak í að hækka

    Mál 1412054 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um átak til að hækka menntunarstig starfsmanna leikskóla.

  9. 9. Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila

    Mál 1110040 Allur ferill málsins

    Framlögð skýrsla Ríkisendurskoðunar um stöðu hjúkrunarheimila ásamt mati á rýmisþörf.

  10. 10. Umsókn um styrk vegna Eldvarnarátakssins 2014

    Mál 1412022 Allur ferill málsins

    Bréf Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna þar sem óskað er eftir styrk vegna eldvarnarfræðslu í grunnskólum. Bæjarráð samþykkir að veita 30.000 kr. styrk.

  11. 11. 211.mál til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna),

    Mál 1412053 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá nefndasviði Alþingis um frumvarp til laga um húsaleigubætur. Vísað til félagsmálanefndar.

  12. 12. 366. mál til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði o.fl.)

    Mál 1412047 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá nefndasviði Alþingis um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignaskatt).

  13. 13. Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2014

    Mál 1411071 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 1.desember sl. lögð fram til kynningar.