Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og stuðningur við innleiðingu námskrár
Mál 1411161 Fyrst á dagskrá 9. desember 2014, síðast 18. desember 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Fræðslunefnd, fundur 10 liður 6
Fyrir liggur bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og stuðning við innleiðingu námskrár. í bréfinu er gert ráð fyrir einstökum þáttum breytinganna og ákvörðunum sem liggja fyrir. Þessir þættir eru lykilhæfni, breyting á námsmatskvarða við lok grunnskóla, stig á bak við einkunnir og stuðningur við innleiðinguna. Á næstunni mun ráðuneytið senda frá sér nánari upplýsingar um tilhögun styrkveitinga. Lagt fram til kynningar.
-
Bæjarstjórn, fundur 169 liður 3.6
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 10“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.