Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Mótun stefnu er varðar útleigu íþróttahúsa í Fjarðabyggð undir stóra viðburði

Mál 1412049 Fyrst á dagskrá 15. desember 2014, síðast 18. desember 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 410 liður 16

    Íþrótta- og tómstundanefnd vísaði til bæjarráðs drögum að gjaldskrá fyrir útleigu íþróttahúsa í Fjarðabyggð undir stóra viðburði. Í drögunum er fjallað um í hvaða tilvikum slík útleiga er réttmæt og hvernig gengið skuli frá slíkri leigu. Þá voru einnig lögð fram drög að leigusamningi sem lægi til grundvallar fyrir slíka viðburði. Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkti gjaldskrána og leigusamninginn fyrir sitt leyti og vísaði málinu áfram til bæjarráðs til staðfestingar.

    Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra sem leggur málið fyrir að nýju.

  2. Bæjarstjórn, fundur 169 liður 2.16

    Fundargerðin „Bæjarráð - 410“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is