Samgöngumál íþróttafólks
Mál 1412086 Fyrst á dagskrá 15. desember 2014, síðast 22. janúar 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 410 liður 15
Íþrótta- og tómstundanefnd vísaði málinu til frekari umræðu í bæjarráði. Íþrótta- og tómstundafulltrúa var falið að semja minnisblað þar sem áherslur nefndarinnar komi fram, en þær eru helstar að börn sem eru 16 og 17 ára njóti sömu fríðinda til samgangna og börn upp að 16 ára aldri í sveitarfélaginu. Einnig að ungmennum fram að 20 ára aldri sé veittur styrkur sem jafngildi ungmennaafslætti.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdasviði að vinna nánari tillögu að útfærslu.
-
Bæjarstjórn, fundur 169 liður 2.15
Fundargerðin „Bæjarráð - 410“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2015
Bæjarráð, fundur 413 liður 13
Lögð fram tillaga framkvæmdasviðs dagsett 12.janúar um afslætti til barna á 17. og 18. aldursári í almenningssamgöngum.
Bæjarráð þakkar tillögur og mun skoðar þær nánar í tengslum við vinnu KPMG sem nú er í gangi.
-
Bæjarstjórn, fundur 171 liður 2.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 413“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.