Beiðni um framlengingu á staðsetningu starfsmannabúða að Haga 2014
Mál 1410022 Fyrst á dagskrá 6. október 2014, síðast 18. desember 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 400 liður 1
Erindi Alcoa Fjarðaáls um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga. Vísað til afgreiðslu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 164 liður 2.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 400“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 410 liður 4
Vísað til bæjarráðs frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Nefndin hefur samþykkt að stöðuleyfi verði framlengt til 30. júní 2015. Einnig eru lögð fram til drög að viðauka við samning um stöðuleyfi starfsmannabúðanna við Haga. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti drög að samningi frá 28. júní 2014 og vísaði málinu til staðfestingar bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og felur bæjarstjóra að ganga frá málinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 169 liður 2.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 410“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.